Opið fyrir umsóknir til endurmenntunar

Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2023 til 2024.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2023-2024 (1. ágúst 2023 – 31. júlí 2024). Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2023.
Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir.
Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita styrk til endurmenntunar félagsmanna í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ). Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn FG og SÍ geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2023-2024 er til og með 6. mars 2023.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á vefsvæði Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni.