Opið fyrir umsóknir í Sprotasjóð 2024

Fréttir|2. janúar 2024

Sprotasjóður hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir skólaárið 2024-2025. Umsóknarfrestur er til klukkan 15.00 fimmtudaginn 15. febrúar 2024. Farsæld barna og ungmenna og teymiskennsla eru á meðal áherslusviða að þessu sinni.

Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Markmið sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.

Áherslusvið Sprotasjóðs fyrir árið 2024 eru: 

  • Farsæld barna og ungmenna, með áherslu á umburðarlyndi, fjölbreytileika og inngildingu nemenda
  • Teymiskennsla og samstarf

Einnig er hægt að senda inn umsóknir sem ekki falla undir þessi áherslusvið. Allar umsóknir eru metnar út frá matskvarða sjóðsins.

Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar geta sótt um fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Hér er hægt að lesa meira um sjóðinn. Fyrir nánari upplýsingar eða ef spurningar vakna má hafa samband við Óskar (515 5839) eða Skúla (515 5843) eða senda fyrirspurn á sprotasjodur@rannis.is