Opið fyrir umsóknir í Sprotasjóð 2023
Fréttir|22. desember 2022

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprotasjóð fyrir árið 2023. Umsóknarfrestur er til klukkan þrjú fimmtudaginn 16. febrúar. Farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl og geðheilbrigði eru á meðal áherslusviða sjóðsins að þessu sinni.
Sjóðurinn styrkir þróunarverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Markmið sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.
Áherslusvið Sprotasjóðs fyrir árið 2023 eru:
- Farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl, geðheilbrigði
- Sköpun og hönnun
- Stafræn borgaravitund, upplýsinga- og miðlalæsi
Sjóðurinn tekur vel á móti öllum verkefnum sem að falla undir þessi áherslusvið. Einnig er hægt að senda inn umsóknir sem ekki falla undir þessi áherslusvið. Allar umsóknir eru metnar út frá matskvarða sjóðsins.
Hér er hægt að lesa meira um Sprotasjóð.