Opið fyrir umsóknir í sjóð Clöru Lachmanns

Fréttir|27. febrúar 2023

Sjóðurinn styrkir verkefni á ólíkum sviðum sem stuðla að samkennd og samvinnu við og milli Skandinava. Umsóknarfrestur er til 15. mars. Kennarar á öllum skólastigum geta sótt um.

Opið er fyrir styrkumsóknir í sjóð Clöru Lachmanns (Clara Lachmanns Stiftelse). Sjóðurinn styrkir verkefni á ólíkum sviðum sem stuðla að samkennd og samvinnu við og milli Skandinava, meðal annars ýmis samstarfsverkefni, náms- og kynningarferðir, undirbúning og þátttöku í viðburðum, svo sem málþingum og námstefnum, og gerð og útgáfu fræðsluefnis. Sérstök áhersla er lögð á að auka tengsl ungmenna á Norðurlöndum.

Kennarar á öllum skólastigum geta sótt um, þar með talið tónlistarkennarar, en sérstök áhersla er á tónlist hjá sjóðnum. Verkefnin skulu fara fram í einu af löndum Skandinavíu, það er Svíþjóð, Noregi, Danmörku eða á Íslandi, að Grænlandi og Færeyjum meðtöldum og umsóknaraðilar skulu vera frá framangreindum löndum.

Hægt er að sækja um styrk frá 4.000 til 50.000 sænskra króna, eða um 55.000 til 690.000 íslenskra króna.

Umsóknarfrestur er til 15. mars.

Hér er hægt að lesa meira um sjóðinn og umsóknarferlið.