Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóð KÍ

Hægt er að sækja um styrk í Rannsóknasjóð KÍ fyrir skólaárið 2024-2025 til miðnættis sunnudaginn 10. mars 2024.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Rannsóknasjóð Kennarasambands Íslands. Þetta er sjöunda árið sem sjóðurinn er starfræktur og eru sjö milljónir króna til úthlutunar fyrir skólaárið 2024-2025.
Áherslusvið 2024-2025
Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni eru:
- Árangursríkar kennsluaðferðir sem efla orðaforða, tjáningu, mál- og lesskilning
- Nám og kennsla barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
- Gæði kennslu og þróun kennsluhátta í afmörkuðum sviðum eða námsgreinum
- Staða hinsegin kennara í skólum
- Starfsþróun sem styður við faglegt skólastarf og starfsánægju kennara
Félagsfólk sem býr að hugmynd að rannsókn sem rúmast innan áherslusviðanna er hvatt til að senda inn umsókn.
Umsóknarferlið
Til að sækja um styrk í Rannsóknasjóð KÍ þarf að fylla út eftirfarandi umsóknareyðublað.
Umsækjandi, eða ábyrgðarmaður umsóknar, ef umsækjendur eru fleiri en einn, sækir í kjölfarið um styrk í Rannsóknasjóð KÍ á Mínum síðum.
Umsóknareyðublaði og ferilskrá/m umsækjanda/enda skal hlaðið upp með umsókn á Mínum síðum, ásamt öðrum fylgigögnum, ef við á.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2024-2025 er til miðnættis sunnudaginn 10. mars 2024.
- Hér er hægt að lesa meira um áherslur sjóðsins skólaárið 2024-2025.
- Hér er hægt að kynna sér regluverk Rannsóknasjóðs KÍ.
- Hér er hægt að kynna sér viðmið og umsóknarferli sjóðsins.
- Hér er hægt að lesa meira um Rannsóknasjóð KÍ.
Sjöunda úthlutun Rannsóknasjóðs KÍ er áformuð í apríl. Sjóðurinn hóf að veita styrki árið 2019 og hafa 26 rannsóknarverkefni verið styrkt. Meginmarkmið með stofnun Rannsóknasjóðs er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna KÍ, þróa nýja fræðiþekkingu sem félagsmenn hafa þörf fyrir og stuðla að auknum gæðum í skólastarfi.