Opið fyrir umsóknir í námsleyfasjóð
Fréttir|7. september 2026

Grunnskólinn
Félagsfólk í FG og SÍ getur nú sótt um námsleyfi fyrir skólaárið 2027-2028.
Námsleyfasjóður hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2027-2028.
Umsóknarfrestur er til kl. 14:00 14. október 2026.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Námsleyfasjóðs.