Opið fyrir umsóknir í Menntarannsóknasjóð

Fréttir|27. október 2023

Menntarannsóknasjóður mennta- og barnamálaráðherra styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs.

Menntarannsóknasjóður mennta- og barnamálaráðherra styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs sem byggja á samstarfi rannsakenda og fagfólks í skóla- og frístundastarfi. Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í sjóðinn og rennur frestur út klukkan 15:00 fimmtudaginn 23. nóvember næstkomandi. 

Áherslur sjóðins eru eftirfarandi

  • Nám og kennsla nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og fjöltyngi.
  • Menntun og farsæld barna og ungmenna og þverfagleg samvinna milli skólastiga og þjónustukerfa.
  • Þróun kennsluhátta í íslensku, stærðfræði og náttúrugreinum á grunn- og framhaldsskólastigi.
  • Læsi og námsorðaforði.
  • Kennaraspá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig (nýliðun, brotthvarf og starfsumhverfi).
  • Farsælt frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6-18 ára.

Hver er markmiðið?

Menntarannsóknasjóður mennta- og barnamálaráðherra styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs sem byggja á samstarfi rannsakenda og fagfólks í skóla- og frístundastarfi. Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

Fyrir hverja er sjóðurinn?

Rannsakendur á sviði menntavísinda við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir geta sótt um verkefnisstyrki. Rannsakendur geta myndað rannsóknarhóp með samstarfsfólki við aðrar rannsóknastofnanir og/eða fagfólki á sviði menntamála, s.s. við leik-, grunn- og framhaldsskóla, sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki.

Einstaklingar sem samþykktir hafa verið inn í doktorsnám við íslenskan háskóla geta sótt um doktorsnemastyrk.

Nánari upplýsingar á vef RANNÍS