Opið fyrir umsóknir í Endurmenntunarsjóð grunnskóla

Frestur til að sækja um styrk í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna verkefna skólaársins 2024-2025 er til og með 1. mars 2024.
Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita styrk til endurmenntunar félagsmanna í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ). Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn FG og SÍ geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir.
Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2024-2025 er til og með 1. mars 2024. Stefnt er að því að svarbréf berist umsækjendum um miðjan maí 2024.
Umsóknarferlið
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi í vefgátt Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér umsóknareyðublaðið vel áður en þeir hefjast handa við að fylla inn í það. Æskilegt er að fylla eyðublaðið út í einni lotu og senda inn. Hægt er að vista umsóknina og koma að henni aftur en engin ábyrgð er tekin á þeim upplýsingum sem kunna að glatast við það.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins áður en sótt er um.
Nánari aðstoð
Kolbrún Erna Magnúsdóttir veitir aðstoð við tæknileg atriði í tölvupósti á kolbrun.erna.magnusdottir@samband.is eða í síma 515 4944.
Nánari upplýsingar veitir Anna Ingadóttir í tölvupósti á anna.ingadottir@samband.is eða í síma 515 4918.