Opið fyrir tilnefningar til menntaverðlaunanna
Fréttir|15. mars 2024

Nú er hægt að senda inn tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna sem verða afhent við hátíðlega athöfn í nóvember.
Frestur til að vekja athygli á framúrskarandi skólastarfi og senda tillögu um verðlaunahafa Íslensku menntaverðlaunanna er 1. júní næstkomandi.
Markmið Íslensku menntaverðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum
- Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Senda tilnefningu - Framúrskarandi kennari
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
Senda tilnefningu - Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.
Senda tilnefningu - Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.
Senda tilnefningu - Hvatningarverðlaun
Til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Senda tilnefningu
Lesa meira um Íslensku menntaverðlaunin

Verðlaunaafhending á Bessastöðum 2023