Opið fyrir bókanir OKÍ á hausti komanda

Hausttímabil Orlofssjóðs er frá 16. ágúst 2024 til 7. janúar 2025.
Opið er fyrir bókanir á hausttímabili Orlofssjóðs. Bókunartímabilið gildir um allar eignir Orlofssjóðs frá 16. ágúst 2024 til 7. janúar 2025.
Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs, segir marga komna í stellingar fyrir næsta haust.
Hægt er að skoða og bóka á Orlofsvef KÍ.
Þá er vert að minna félagsmenn á að enn eru stöku vikur lausar í sumar. Linda segir framboðið mest í raðhúsunum á Bifröst. „Við hvetjum þá sem kunna vel að meta útivist og golf að kynna sér svæðið. Borgarfjörður er paradís fyrir göngufólk og íbúðirnar eru allar með heitum potti og grilli á sólríkum palli," segir Linda.
Alltaf er eitthvað um afbókanir og segir Linda því um að gera fyrir félagsfólk að fylgjast með á Orlofsvefnum. Það er aldrei að vita hvað dettur inn.
Mæting og umgengni
Því miður hefur þess orðið vart að umgengni um orlofshúsin er ekki alltaf góð. Linda segir umsjónarmenn húsanna víða um land hafa bent á þetta að undanförnu. Hún hvetur félagsmenn til að vanda til verka þegar dvalið er í húsunum og skila þeim í góðu ástandi.
Þá munu brögð að því að félagsmenn komi í húsin fyrr en leyfilegt er. „Það er ekki gott því umsjónarmenn þurfa sinn tíma til að yfirfara húsin fyrir næstu gesti. Munum að komutími er að jafnaði klukkan fjögur síðdegis," segir Linda.

Nýjustu sumarhús Orlofssjóðs er að finna í Úlfsstaðaskógi, rétt fyrir utan Egilsstaði.