Opið á ný fyrir bókanir í Vörðuleiti

Búið er að opna fyrir bókanir íbúða í Vörðuleiti á ný eftir þátttöku OKÍ í samstöðuverkefni um að koma Grindvíkingum í öruggt skjól.
Í nóvember setti Orlofssjóður KÍ allar íbúðir sínar í Vörðuleiti í samstöðuverkefni um að koma Grindvíkingum í öruggt skjól. Það þýddi að afbóka þurfti bókanir félagsmanna til 15. janúar og að sögn Lindu Bjarkar Pálsdóttur, framkvæmdastjóra OKÍ, var frábært að sjá hve vel fólk tók í að víkja fyrir löndum sínum í neyð.
Nú hafa nokkrir Grindvíkingar þegar lokið dvöl sinni í Vörðuleiti á meðan nokkrir hafa kosið að vera áfram. Því er hægt að opna fyrir bókanir í lausar íbúðir á ný og gert er ráð fyrir að allar íbúðir í Vörðuleiti verði aftur komnar í hefðbundna orlofsleigu um miðjan mars.
„Við þökkum þolinmæði félaga okkar á landsbyggðinni. Það er ekki sjálfsagt að taka íbúðirnar í Reykjavík úr þjónustu og við vitum að það hefur reynst sumum félögum flókið að hafa ekki aðgang að þessum húsakosti,“ segir Linda Björk.