Ómetanlegt að sameinast í söng

„Samfélagið þarf á kórastarfi að halda. Ávinningurinn er okkar allra.“ Ása Valgerður Sigurðardóttir, formaður Tónmenntakennarafélags Íslands, skrifar um Landsmót íslenskra barnakóra 2024.
Söngur sameinar. Söngur eflir samkennd. Söngur eykur orðaforða og styrkir máltilfinningu. Söngur opnar hjartað, tengingu við okkur sjálf og aðra. Þess vegna er mikilvægt að nýta þessa athöfn, að syngja saman, á sem flestum sviðum samfélagsins, ekki síst í skólum. Á tímum þar sem sundrung, árekstrar og óöryggi ræður ríkjum liggja tækifærin í því að skapa vettvang þar sem við komum saman til að finna það sem sameinar okkur. Að sameinast í söng er ein besta leiðin til þess.
Unnið saman með gleði í forgrunni
Landsmót íslenskra barnakóra fór fram á Hvolsvelli 27.-29. september 2024. Mótshaldari var Ingibjörg Erlingsdóttir, tónmenntakennari og kórstjóri við Hvolsskóla, ásamt Stefáni Þorleifssyni, tónlistarkennara og kórstjóra á Selfossi.
Á kóramótið fjölmenntu um 200 börn og unglingar á aldrinum 11-15 ára frá Selfossi, Hvolsvelli, Sandgerði, Akranesi, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík. Gist var í Hvolsskóla, kvöldvaka í félagsheimilinu Hvolnum, sundferðir, gönguferð til að kynnast svæðinu og ánægjulegt var að sjá hvernig kórbörnin spegluðu sig í hvert öðru og mynduðu vinasambönd og tengsl á milli landshluta.

Börnin koma því ríkari heim úr kórstarfi með ný íslensk orð og orðasambönd í farteskinu, ásamt sögum til umhugsunar út frá textum eða ljóðum
Þema mótsins að þessu sinni var íslensk dægurlög. Sungið var um traustan vin, gamla skólann, álfa, berjamó, að stinga af með fjölskyldunni, vegbúann, stríð, frið og hve lífið er yndislegt. Hugleiðingar um texta samhliða kórþjálfun eru órjúfanlegur þáttur af kórstarfi. Börnin koma því ríkari heim úr kórstarfi með ný íslensk orð og orðasambönd í farteskinu, ásamt sögum til umhugsunar út frá textum eða ljóðum. Fullt var út úr dyrum á lokatónleikunum sem haldnir voru í Hvolnum sem hélt fallega utan um mótið. Engin keppni og öll velkomin. Unnið var saman óháð getu og þvert á aldur og kóra, með samvinnu, þjálfun og gleði í forgrunni.
Tónmenntakennarafélag Íslands (TKÍ) hefur haldið Landsmót íslenskra barnakóra annað hvert ár frá árinu 1977 eða í bráðum 50 ár. Það er því mikil menningarsaga í starfi félagsins og mörg íslensk börn notið framlags TKÍ til tónlistarsögu Íslands. Tónskáld hafa samið verk fyrir landsmótin þar sem kórar víðs vegar af landinu koma saman til syngja, kynnast og njóta saman tónlistar. Í kórstarfi reynir á virka hlustun, félagsfærni og samvinnu. Þessa færni til þátttöku í samfélaginu taka börnin svo með sér út í lífið sem er ómetanlegt.
Kórstarf bætir skólabrag
Það vakti athygli að af þátttökukórunum ellefu á Hvolsvelli var aðeins einn frá Reykjavík. Það er verulegt áhyggjuefni ef kórum í skólum fer fækkandi. Á árum áður var það metnaður hvers skóla að hafa starfandi kór, í það minnsta reglulegan samsöng með þátttöku þvert á árganga. Með því að gera það ekki fara skólarnir á mis við þann mannauð sem virkjaður er með kórstarfi. Skólabragur er öðruvísi í skólum með starfandi kóra. Þar kunna nemendur að koma saman, hlusta og virða hvert annað.
Fjölmargar rannsóknir sýna fram á heilsueflandi þátt söngs, áhrif á lungu og æðakerfi og ekki síst jákvæð áhrif á taugakerfið. Það er því auðvelt að færa rök fyrir því að söngur í skólum sé heilbrigðismál og varði lýðheilsu. Stjórnendur skóla, áhugi þeirra og skilningur fyrir kórstarfi ræður oftast úrslitum um það hvort kórar eru starfandi við skóla. Kórstarf er því miður ekki hluti af Aðalnámsskrá grunnskóla og söngur aðeins hluti af tónmennt en þyrfti í raun að vera hluti af íslenskukennslu, enda óumdeilanlegt hversu vel söngur er til þess fallinn að kenna íslensku.
Í alþjóðlegum samanburði, svo sem samkvæmt PISA könnuninni, þá skortir á samkennd og samvinnu meðal íslenskra grunnskólanema. Í kórstarfi reynir á virka hlustun og samstarf. Söngurinn sameinar, eflir samkennd, eykur orðaforða, styrkir máltilfinningu, opnar hjartað og tengingu við okkur sjálf og aðra. Hvað er hægt að biðja um meira í skólastarfi?
Tónmenntakennarafélag Íslands skorar hér með á öll þau sem hafa áhuga á heilsueflandi, listrænu, kærleiksríku og skemmtilegu skólastarfi að lýsa yfir áhuga sínum á kórstarfi og koma því í framkvæmd, ekki síst stjórnendur sem hafa það í hendi sér hvort starfandi séu kórar við skóla. Á vorin vinna skólar að skipulagi næsta skólaárs.
Samfélagið þarf á kórastarfi að halda. Ávinningurinn er okkar allra.

Þátttakendur, kórstjórar og kennarar stilla sér upp fyrir mynd af hópnum í hrauninu.