Öll þjónusta KÍ veitt með rafrænum hætti

Fréttir|23. mars 2020

Vegna COVID-19 faraldursins og neyðarstigs Almannavarna verður skrifstofu KÍ lokað á hádegi í dag. Þetta er gert til að tryggja öryggi starfsfólks og félagsmanna. Þjónustan verður með rafrænum hætti.

Vegna COVID-19 faraldursins og neyðarstigs Almannavarna verður skrifstofu KÍ lokað á hádegi í dag. Þetta er gert til að tryggja öryggi starfsfólks og félagsmanna. Kennarasambandið mun veita sömu þjónustu og áður þótt starfsfólk vinni heimavið og noti fjarfundabúnað til að hafa samskipti sín á milli.

Þessi ráðstöfun er ótímabundin og verður endurskoðuð eftir þörfum og aðstæðum.

Skiptiborð KÍ verður opið frá kl. 9 til 16 mánudaga til fimmtudaga, kl. 9 til 15 á föstudögum. Félagsmenn geta sem fyrr fengið samband við þjónustufulltrúa eða leitað eftir almennri þjónustu sambandsins.

Við minnum á vefsíðu KÍ þar sem er að finna upplýsingar um sjóði, styrki og kjaramál auk nýjustu frétta af skóla- og menntamálum í tengslum við COVID-19.
Á vefsíðu KÍ er einnig hægt að senda fyrirspurnir eða skilaboð með einföldum hætti og svara þjónustufulltrúar eins fljótt og auðið er.

Sími og tölvupóstur


Símanúmer KÍ er 595 1111

Starfsfólk KÍ – netföng

Kennarasamband Íslands – ki@ki.is

Sjóðir KÍ – sjodir@ki.is

Orlofssjóður – orlof@ki.is