Öll störf eru kvennastörf!

Boðað er til hádegisverðarfundar á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, undir yfirskriftinni Öll störf eru kvennastörf! – brjótum niður kyndbundið náms- og starfsval.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík og stendur frá 11.45 til 13.00.
Í kynningu fundarefni segir: Íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur. Kynbundið náms- og starfsval er talin vera ein helsta skýring þess hve illa gengur að vinna gegn launamun kynjanna. Kvennastarfsstéttir hafa almennt lægri tekjur en starfsstéttir þar sem karlastarfsstéttir. Þá getur kynbundið náms- og starfsval haft áhrif á val einstaklinga og þrengt valmöguleika þar sem tilteknar starfsstéttir eru útilokaðar þegar engar eða fáar fyrirmyndir eru af sama kyni. Innlendar sem erlendar rannsóknir sýna fram á að engin aðgerð er jafn líkleg til að hafa áhrif á launamun kynjanna og uppbrot hins kynskipta vinnumarkaðar.
Umræður um kynbundið náms- og starfsval en þátttakendur eru:
- Auður Magnúsdóttir formaður Samtaka kvenna í vísindum
- Ágústa Sveinsdóttir fulltrúi átaksins #kvennastarf
- Birna Björnsdóttir slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
- Eva Björk Sigurjónsdóttir Félag kvenna í karllægum iðngreinum
- Eyrún Eyþórsdóttir lögreglumaður
- Lára Rúnarsdóttir formaður Félags kvenna í tónlist
- Umræðum stýrir Brynhildur Björnsdóttir, fjölmiðlakona.
Matarmikil súpa og nýtt heimabakað brauð ásamt kaffi á 2.500 krónur.
Að fundinum standa Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, BSRB, Jafnréttisstofa, Kennarasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja.