Öll jöfn – engin eins

Fréttir|12. júlí 2024

Í leikskólanum Múlaborg, sem var stofnaður árið 1975, er unnið að sameiginlegu uppeldi og kennslu barna með og án fötlunar og skólinn er ríkur af reynslu. Skólavarðan heimsótti Múlaborg en þar er áhersla lögð á jafnrétti og að öll börn fái að njóta barnæsku sinnar og einstaklingar með og án fötlunar fái að njóta þess að læra, vinna og vera saman.

Fallegur fuglasöngur sem barst úr furutrjám tók á móti blaðamanni Skólavörðunnar þegar komið var í Múlaborg. Leikskólinn er staðsettur í Ármúla þó fátt umhverfis hann minni á ysinn og þysinn við múlann. Þar er að finna tvær skólabyggingar sem leikvöllur og lítill birkilundur skilja að. Yngri börnin eru í Litla Múla, nýbyggingu á móti Stóra Múla, sem opnaði í desember 2022.

Gott að vera í Múlaborg

Eftir veglega skoðunarferð um skólabyggingarnar tvær, með viðkomu í sögustund í Birkilundi og heimsóknum á deildir þar sem skólastarf var í fullum gangi, hófst kaffispjall á skrifstofu Kristínar Árnadóttur skólastjóra ásamt Brynhildi Guðmundsdóttur sérkennslustjóra. Þær eru meðal þeirra tæplega fimmtíu starfsmanna sem starfa við Múlaborg með um 130 börnum. Í starfsmannahópnum er meðal annars að finna fimmtán karlmenn, níu kennara, þar á meðal tvo íþróttakennara og sérkennara, og fjóra þroskaþjálfa.

Báðar eiga þær langa sögu við skólann og hafa sinnt ýmsum hlutverkum í gegnum árin, Kristín í um 20 ár og Brynhildur í 25. Og það er ekki einsdæmi, en um þriðjungur starfsmannahópsins hefur starfað við skólann í 10 ár eða lengur, átta hafa starfað þar í meira en 15 ár, og einstaka starfsmenn í allt að 30 ár. Það er meira að segja svo gott að vera í Múlaborg að sjö fyrrum nemendur hafa kosið að gerast starfsmenn við skólann síðar meir.

Nýtt fólk – nýjar hugmyndir

„Það er samt alltaf smá hreyfing á starfshópnum,“ segir Kristín skólastjóri. „Sum starfa bara við skólann í eitt eða tvö ár á meðan þau eru að fóta sig í lífinu, til dæmis undirbúa sig fyrir háskólanám, eða næstu skref, sem er líka gott,“ bætir hún við. Þau koma gjarnan inn með nýjar hugmyndir, og stundum gagnrýni, sem er gott að fá fram. „Það er alltaf gaman að fá að vera í samtali við fólk sem sér starfið aðeins öðrum augum.“

Brynhildur Guðmundsdóttir sérkennslustjóri og Kristín Árnadóttir skólastjóri Múlaborgar. 

„Við sem erum búin að vera hér svona lengi erum markvisst að passa okkur á að vera alltaf jákvæð,“ segir Brynhildur sérkennslustjóri. Detta ekki í „nei, þetta þýðir ekkert,“ eða „við erum búin að prófa þetta,“ þegar nýjar hugmyndir koma fram. „Við erum aldrei búin að vera það lengi í leikskóla að við höfum séð allt,“ segir hún.

Þá er lögð áhersla á að hver manneskja hafi sína styrkleika sem eigi að nýta og ítrekað að engin spurning sé röng eða kjánaleg, og aldrei hægt að spyrja of oft að sömu spurningunni. „Við erum náttúrulega bara ótrúlega heppin með starfsfólk yfir höfuð. Það er bara gaman í vinnunni, það eru allir jákvæðir, það eru allir svo miklir þátttakendur og ég held að það smiti út frá sér til næsta starfsmanns og næsta,“ segir Kristín, og Brynhildur bætir við að það sé alltaf gaman að koma í vinnuna, enda sé hún alltaf að læra, líka eftir 25 ár.

Við sem erum búin að vera hér svona lengi erum markvisst að passa okkur á að vera alltaf jákvæð.

Næstum 50 ára saga að baki

Líkt og áður sagði hefur leikskólinn verið starfræktur í Reykjavík frá árinu 1975 og fagnar hann því hálfrar aldar afmæli á næsta ári. En margt hefur breyst frá upphafsdögunum. Þegar leikskólinn var byggður var hann alveg tvískiptur; Reykjavíkurborg sá um þrjár deildir og barnafélagið Sumargjöf og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra um sérdeildina, en börnin, starfsfólkið og starfsemin voru alveg aðskilin. „Þar var sér starfsfólk, sér símalína, sér kaffistofa, og sér leiksvæði fyrir börnin,“ segir Brynhildur. Einn starfsmanna skólans, sem var áður nemandi á sérdeildinni, man til dæmis eftir sjálfri sér hangandi á grindverkinu á útileiksvæði sérdeildarinnar að horfa á krakkana að leik hinum megin og langaði að vera með, segir Brynhildur.

En svo urðu sem betur fer miklar framfarir. Árið 1992 var ákveðið að Reykjavíkurborg tæki yfir rekstur deildarinnar og þá var í fyrstu gert ráð fyrir að pláss væri fyrir þrjú börn með miklar sérþarfir á hverri deild. Síðar var þeim fækkað í tvö, þar sem þrjú þóttu of mörg, útskýrir Brynhildur. „Í dag náttúrulega skiptir ekki máli hvort þú sért með fötlun eða ekki. Þegar það er komið að þér að fara í leikskóla þá bara ert þú velkominn,“ segir hún.

Árið 1998 var svo tekin upp heildstæð skólastefna, sem í dag kallast skóli fyrir alla – og ákveðið að hætta aðgreiningu. Þó var það þannig að mikið rask var hjá börnum með mikla fötlun og þau tekin út úr tímum og af deild í tíma og ótíma til að fara í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, talþjálfun eða einhvers konar þroskaþjálfun, segir Brynhildur. „Þannig að barnið var ekki mikið inni á deildinni og því ekki beint partur af henni.“

Í dag er það þannig í Múlaborg að börn sem á þurfa að halda fá enn sína tíma í þroska- og iðjuþjálfun, en því er þó hagað þannig að sem minnst rask verði á skólastarfi barnsins. Það fer til dæmis kannski í annað hvert skipti til sjúkraþjálfara, sem vill reyndar svo heppilega til að er í næsta húsi, og hitt skiptið kemur þjálfarinn í skólann. Stundum fá börnin líka að taka með sér vin af deildinni í þjálfunina.


Börn af Stóra Múla í útiverustund í Birkilundi hitta fyrir nemendur í vettvangsferð af Litla Múla. 

Sameiginlegt uppeldi í forgrunni

Fagleg þekking er mikil innan Múlaborgar og leikskólastarfið byggir á áralangri reynslu fagfólks á öllum sviðum er varðar kennslu yngri barna, sérkennslu og annarri nauðsynlegri þjálfun. Leikskólinn sérhæfir sig í að sinna sameiginlegu uppeldi barna með og án fötlunar og sérþarfa. Þar er inngilding í heiðri höfð, allir skipta máli og enginn er hafður út undan.

Skólastarfið endurspeglar ofangreint. Til dæmis eru allir starfsmenn á hverri deild sérfræðingar í sínum nemendum, hvort sem þeir eru með fötlun eða sérþarfir eða ekki. „Það er ekki einhver einn ráðinn inn til þess að vera með ákveðið barn með miklar sérþarfir, heldur vinnur allt starfsfólkið að því að barnið fái að njóta sinnar barnæsku, vera með og læra í gegnum leik eins og öll önnur börn,“ útskýrir Brynhildur sérkennslustjóri. Hver og einn starfsmaður á deild barnsins er sérfræðingur í því barni og þörfum þess.

Þetta fyrirkomulag, þátttaka hvers starfsmanns í starfinu vekur áhuga og eykur á virkni: „Það koma upp alls konar hugmyndir og lausnir hér og þar sem skipta samt svo miklu máli í stóra samhenginu,“ segir Brynhildur. Allt í einu fattar til dæmis einhver starfsmaður hvernig hægt er að útbúa snjóþotu svo öll börnin á deildinni geti verið með og setið í snjóþotu, svo dæmi sé tekið.

Við sem erum búin að vera hér svona lengi erum markvisst að passa okkur á að vera alltaf jákvæð.

„Það er líka ósanngjarnt gagnvart barni að vera alltaf með sömu manneskjunni. Hvað til dæmis ef barninu finnst kannski sú manneskja bara vera leiðinleg?“ segir Brynhildur. „Við erum á því að við eigum að nýta mannauðinn og fjölbreytileikann í starfsmannahópnum.“

„Barnið kynnist öllu starfsfólkinu á deildinni, starfsfólki með mismunandi áhugamál, mismunandi áherslur, mismunandi lykt, því engin okkar eru eins,“ bætir skólastjórinn við. „Barn er alltaf fyrst og fremst barn. Síðan vinnum við út frá því hvar það er statt.“

Alltaf finnast lausnir ef vel er að gáð

„Við finnum alltaf lausnir. Við hættum ekki við að gera hitt eða þetta því einhver getur ekki tekið þátt því það er ekkert sem barn getur ekki,“ segir Kristín. Útgangspunkturinn er: Hvernig ætlum við að gera þetta þannig að allir geti tekið þátt? Þannig þróast starfið áfram og alls konar lausnir koma fram. Þetta miðast allt við að vera lausnamiðaður og hugmyndaríkur, taka við hugmyndum annarra eða gagnrýni, og svo leggjast bara öll á eitt,“ segir Kristín.

„Börnin aðgreina ekki og þau finna lausnir líka þannig að hvert barn tilheyrir hópnum að öllu leyti,“ segir Kristín. „Við vinnum með einstaklinginn eins og hann er og eftir hans þörfum.“ Það sjónarmið gildir um öll börn í Múlaborg, hvort sem þau eru með eða án fötlunar og sérþarfa, fylgja sínum þroska í aldri eða eru bráðger. „Markmiðið er að öll fái það sem þau þurfa og meira en það helst,“ segir Kristín að lokum og bætir við: „Við erum með alla flóruna hér inni á Múlaborg, bæði í nemenda- og starfsmannahópnum en við erum ekkert að vinna sérstaklega með það sem slíkt. Börnin gera sér grein fyrir að það eru ekki allir eins, og það eiga ekki allir að vera eins, en það geta allir verið vinir. Við erum öll jöfn.“


Súsanna Gestsdóttir, Kristín Árnadóttir, María Kristjánsdóttir og Brynhildur Guðmundsdóttir við afhendingu Orðsporsins í Múlaborg í febrúar.

Orðsporið 2024 kom í hlut Múlaborgar

Leikskólinn Múlaborg hlaut Orðsporið 2024, hvatningarverðlaun leikskólanna, sem afhent eru árlega 6. febrúar á degi leikskólans, fyrir að vera leikskóli fyrir alla, þar sem öll börn eru velkomin og þörfum þeirra er mætt.

Í umsögn valnefndar um Orðsporið segir að í Múlaborg sé unnið framúrskarandi starf er kemur að jafnrétti í víðu samhengi og þróun kennsluhátta fyrir börn með fatlanir og aðrar sérþarfir. Þá taki leikskólastarf og kennsla mið af hverjum og einum einstaklingi og kennslurými og -aðferðir séu aðlagaðar að hverju barni fyrir sig með það að leiðarljósi að börnin njóti sín, hvert á sínum forsendum.

Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, mennta- og barnamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli. Mikill fjöldi tilnefninga, eða um sextíu talsins, bárust valnefnd að þessu sinni. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, afhenti Kristínu Árnadóttur leikskólastjóra Múlaborgar viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Múlaborg, að kennurum og stjórnendum skólans viðstöddum ásamt fulltrúum Orðsporsins.

Verðlaunin komu þeim Kristínu og Brynhildi á óvart en þær segja þau hafa haft áhrif á starfið og starfsandann og verið hvatning til að sinna starfinu áfram vel og gera jafnvel enn betur.