Ólíðandi tafir á samningaferli grunnskólakennara

Fréttir|11. maí 2014

Sjötti aðalfundur Félags grunnskólakennara (FG), haldinn 8. - 9. maí 2014, skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd þeirra að ganga strax og af alvöru í að leiðrétta laun félagsmanna FG og ljúka samningum án tafar. Þær tafir sem orðnar eru á samningaferlinu eru með öllu ólíðandi. Að félagsmenn FG séu samningslausir skapar óvissu og er skaðlegt skólastarfi.

Kennarar á öllum skólastigum/skólagerðum eru sérfræðingar í mismunandi greinum og fræðasviðum. Árið 2008 voru samþykkt lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. Þar segir að einungis þeir sem lokið hafa meistaraprófi frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu ráðherra á grundvelli laga um háskóla, nr. 63/2006 hafi rétt til að kalla sig grunnskólakennara. Kennarar og náms- og starfsráðgjafar eru sérfræðingar og það sama á við um skólastjórnendur og náms- og starfsráðgjafa sem starfa innan skólanna. Löggjafinn hefur viðurkennt að kennsla hafi verið vanmetin og að kennarastarfið hafi breyst það mikið að nauðsynlegt sé að kennarar ljúki fimm ára meistaranámi. Félagsmenn FG bera laun sín saman við þá sem hafa sambærilega menntun og vinna sem sérfræðingar á vinnumarkaði. Það er óverjandi að félagsmenn FG þurfi með reglulegu millibili, vegna sinnuleysis yfirvalda, að beita aðgerðum til að knýja fram sanngjarnar launaleiðréttingar. Samkvæmt skýrslu SALEK, Samstarfsnefndar um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga, eru grunnlaun grunnskólakennara um 30% lægri en sambærilegra hópa hjá sveitarfélögunum. Við þetta verður ekki unað.

Fundurinn skorar á alla sem láta sig skólastarf varða, ekki síst rekstraraðila skóla, að taka höndum saman um að laun og starfskjör félagsmanna í FG standist ávallt samanburð við kjör annarra sérfræðinga og stjórnenda á vinnumarkaði. Einungis þannig verða skólarnir samkeppnishæfir um vinnuafl og aðsókn í kennaranám mun aukast.