Ólafur Dan: Frumkvöðull í stærðfræðikennslu

Fréttir|19. maí 2025
Skólavarðan

Ólafur braut blað í íslenskri menntasögu með því að gera flókna stærðfræði aðgengilega bæði kennurum og nemendum. Hann skrifaði og þýddi margar kennslubækur í stærðfræði á fyrri hluta síðustu aldar og þótti óboðlegt að kenna íslenskum nemendum stærðfræði á erlendu tungumáli.

Hver er maðurinn?

Nafn: Ólafur Dan Daníelsson
Afrek: Frumkvöðull í stærðfræðikennslu og námsbókagerð
Fæðingarár: 1877
Dánarár: 1957

Ólafur fæddist í Viðvík, í Viðvíkursveit, í Skagafirði 31. október 1877. Hann var sonur hjónanna Daníels Ólafssonar, söðlasmiðs og bónda, og konu hans, Svanhildar Loftsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1897 og sigldi þá til náms í stærðfræði við Hafnarháskóla og lauk þaðan magistersprófi árið 1904. Þá hafði hann hlotið gullverðlaun fyrir ritgerð í skólanum og varð mörgum þá ljóst að hér var enginn meðalmaður á ferð.

Ólafur hefði án vafa getað haslað sér völl utan landsteinanna en hann ákvað að koma heim. Það var árið 1908 og réði hann sig til starfa í Kennaraskólanum sem þá var verið að setja á stofn. Til gamans má geta að þegar Ólafur fór til náms var aðeins einn verkfræðingur á Íslandi og þótti það gott.

Ólafur bjó alla tíð í Reykjavík, hann kvæntist Ólöfu Sveinsdóttur og eignuðust þau þrjú börn. Hann sinnti kennslu til ársins 1941 en sneri sér þá að tryggingastærðfræði. Ólafur lést skömmu eftir áttræðisafmæli sitt, í desember 1957.

Fyrstu sporin

Ólafur skipar hóp frumkvöðlanna sem hófu störf í Kennaraskólanum við Laufásveg árið 1908. Ári síðar fór Ólafur til Kaupmannahafnar og varði doktorsritgerð sína – og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að skarta slíkri gráðu. Fyrsta kennslubók Ólafs, Reikningsbók, kom út árið 1906. Ólafur ritaði aðra útgáfu bókarinnar á kennaraskólaárunum en þar kenndi hann auk stærðfræði dönsku og landafræði.

 

Fyrsta stærðfræðideild í mennataskóla hérlendis var sett á stofn árið 1919.
Þá gekk MR undir nafninu Hinn almenni Menntaskóli í Reykjavík.

Menntaskólinn í Reykjavík gekk á þessum tíma undir nafninu Hinn almenni Menntaskóli í Reykjavík og hét svo til ársins 1937 þegar hann fékk núverandi heiti. Ólafur hafði sótt um kennarastarf í skólanum árið 1904 en ekki fengið. Hann varð hins vegar kennari við menntaskólann árið 1919 en þá voru skólayfirvöld mjög áfram um að stofnuð yrði stærðfræðideild við skólann.

Ólafur hafði á þessum tíma unnið að stofnun íslensks tækniskóla sem myndi undirbúa nemendur fyrir nám í Verkfræðiskólanum í Kaupmannahöfn. Félagi hans í þessu verkefni var Þorkell Þorkelsson, sem síðar varð veðurstofustjóri. Ekki varð af stofnun tækniskólans því Ólafur og Þorkell voru fengnir til að koma á fót stærðfræðideild í MR. Ólafur kenndi í skólanum næstu 20 árin og gaf á þeim tíma út kennslubækur í stærðfræði sem voru notaðar áratugum saman. Ein þeirra, Kennslubók í algebru, var kennd í íslenskum skólum vel fram á áttunda áratug síðustu aldar.

Kennarinn og hugsjónamaðurinn

Ólafur var frá fyrstu tíð á þeirri skoðun að ekki væri boðlegt að kenna íslenskum nemendum stærðfræði á erlendu tungumáli – námsefnið var oftast á þýsku eða dönsku. Hann var ötull þýðandi erlendra stærðfræðibóka og þótti hann brjóta blað í sögunni með því að gera flókna stærðfræði aðgengilega bæði nemendum og kennurum hér á landi. Með þýðingum sínum lagði Ólafur grunn að íslenskri stærðfræðitungu til framtíðar.

Hann var jafnframt á undan sinni samtíð er kom að kennsluháttum. Ólafur hafði enga trú á utanbókarlærdómi heldur lagði áherslu á að hver og einn nemandi skildi hugtök og tengsl. Hann predikaði þá kenningu að án kunnáttu í stærðfræði færu menn á mis við mikil og merkileg sannindi. Ekkert sé betra til að þjálfa rökfimi hugans en stærðfræðin. Með þessu þykir hann hafa haft djúpstæð áhrif á þróun stærðfræðikennslu.

Ólafur varð fyrstur manna hér á landi til að fjalla um takmörkuðu afstæðiskenninguna árið 1913 í greininni Ýmsar skoðanir á eðli rúmsins í Skírni. Ólafur, sem minnist þar aldrei á Einstein, er höfundur orðsins afstæðiskenning.

„Ólafur kenndi af lífi og sál, bæði í kennslustundum og utan þeirra,“ segir í minningarorðum Trausta Einarssonar, í Morgunblaðinu 17. desember 1957. Þar segir jafnframt að Ólafur hafi bæði verið virtur og vinsæll kennari, einn af þeim fáu sem báru hag allra nemenda í hverjum bekk fyrir brjósti. Ef nemendur misstu úr, vegna veikinda eða annars, bauð Ólafur jafnan upp á aukatíma án endurgjalds.

Ólafur skrifaði fjöldann allan af vísindagreinum og birtust greinar eftir hann í helstu tímaritum stærðfræðinga í Evrópu. Hann var alla tíð virkur í félagsstarfi kennara, sat meðal annars í stjórn Vísindafélags Íslendinga og lagði sitt af mörkum til að efla stöðu kennara og menntunar í samfélaginu.

Árið 1947 var Ólafur sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til menntamála. Sama ár var Stærðfræðafélagið stofnað, nánar tiltekið á sjötugsafmælisdegi Ólafs. Tilgangur félagsins er að stuðla að samstarfi þeirra sem lokið hafa háskólaprófi í stærðfræðilegum greinum. Ólafur er á lista heiðursfélaga í Stærðfræðafélaginu sem er enn starfrækt.

Í lokin gefum við Trausta Einarssyni aftur orðið: Í menningarsögu þjóðarinnar á fyrri helmingi 20. aldarinnar mun dr. Ólafi jafnan verða skipað virðulegt sæti og hann talinn mestur frömuður stærðfræðilegra mennta í landinu.