Okkar heimur fær jólakortastyrk KÍ

Kennarasamband Íslands styrkir Okkar heim, stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda, um 400.000 krónur.
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, veitti fulltrúum Okkar heims jólakortastyrk Kennarasambandsins 2023 í morgun í höfuðstöðvum sambandsins í Borgartúni. Það voru þær Sigríður Gísladóttir framkvæmdastjóri og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir sem veittu styrknum viðtöku.
Jónína sagði það vera heiður að afhenda samtökunum og þeirra mikilvæga málstað jólastyrk KÍ í ár. „Það er einlæg ósk sambandsins að féð nýtist vel í þágu þess góða starfs sem fer fram hjá Okkar heimi.“
Kennarasambandið hefur ekki sent jólakort um langt árabil en þess í stað sambandið látið fé af hendi rakna til stofnana, samtaka og félagasamtaka sem vinna að velferð barna og ungmenna. Hér til hliðar er hægt að sjá hvaða samtök hafa hlotið jólastyrk KÍ frá því hefðin hófst árið 2010.
Stuðningsúrræðið Okkar heimur
Samtökin Okkar heimur voru sett á fót árið 2020 meðal annars með það að markmiði að sporna við skorti á fræðslu og stuðningi þeirra barna sem eru í þeirri stöðu að eiga foreldra með geðrænan vanda. Þar er unnið eftir hugmyndafræði Our Time og samtökin sjá um gerð fræðsluefnis, halda fjölskyldusmiðjur, stuðla að vitundavakningu og fræðslu í grunnskólum í samstarfi við geðþjónustu Landspítalans.
Á vef samtakanna kemur fram að eitt af hverjum fimm börnum um heim allan sé í þeim sporum. Börn sem alist upp með foreldri með geðrænan vanda séu í talsvert meiri hættu á að þróa sjálf með sér vanda á fullorðinsárum fái þau ekki stuðning. Hér er hægt að kynna sér nánar sögu og tilurð Okkar heims.