OKÍ: Opnar fyrir umsóknir á vikuleigum á þriðjudag
Hægt er að sækja um vikuleigur eigna Orlofssjóðs KÍ á komandi sumri frá klukkan 12:00 á hádegi, þriðjudaginn 18. febrúar.
Hægt er að sækja um vikuleigur frá klukkan 12:00 á hádegi, þriðjudaginn 18. febrúar og til klukkan 11:59 á hádegi, þriðjudaginn 11. mars.
Á þessu þriggja vikna tímabili getur félagsfólk skoðað þær eignir sem í boði eru í vikuleigu og sett upp sinn óskalista, með að hámarki sex eignum, með því að velja umsókn um úthlutun á Orlofsvefnum og fylgja þar leiðbeiningum. Þegar listi hefur verið settur upp þarf að ýta á senda og umsókn verður þá virk í bókunarkerfinu.
Hver einstaklingur fær einungis eina viku úthlutaða. Punktafjöldi ræður því hver fær eignirnar. Hvenær umsókn berst á tímabilinu hefur því engin áhrif á möguleika umsækjenda.
Hér má sjá lista yfir úrvalið. Um helmingi eignanna er deilt út með vikuleigu og hinn helmingurinn verður í boði í svokallaðri dagsleigu, sem opnar í næsta mánuði.
Við viljum vekja athygli á að þó flestar eignir séu með skiptidag á föstudögum í sumar er það ekki alltaf tilvikið. Þetta er gert til að dreifa álagi á umsjónarfólk sjóðsins.
Verð hækkar lítillega frá síðasta sumri fyrir vikuna, en stendur í stað á dagsleigum. Í dag eru öll hús í eigu KÍ með fríu neti og snjallsjónvarpi. Þá verður sumartímabilið lengra en venja er, eða frá 2. júní til 29. ágúst. Sumartímabil húsa í framleigu er þó misjafnt.
Vinsamlega athugið!
- Þeir sem fengu úthlutað sumarið 2024 fá ekki úthlutað 2025. Þetta kemur ekki til með að hafa áhrif á bókanir dagsleiga.
- Punktastaða þeirra sem sækja um sömu eign í sömu viku ræður því hver fær hana.
- Þær eignir sem ekki fara út í vikuúthlutun eru settar á vefinn með dagsleigueignum.
- Félagsmenn í FKE sem hafa látið af störfum geta ekki tekið þátt í vikuúthlutun en þeir geta bókað dagsleigur samkvæmt þeim úthlutunarreglum sem gilda um þær.
