Óheimilt er að nota orlofshús í sóttkví

Fréttir|30. mars 2020

Samkvæmt leiðbeiningum frá Landlækni til almennings varðandi sóttkví, skal einstaklingur í sóttkví halda sig heima við og má ekki fara út af heimili sínu nema brýna nauðsyn beri til.

Athygli félagsmanna er vakin á því að það er með öllu óheimilt að nota orlofshús Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands (OKÍ) sem stað til að dvelja á í sóttkví. Samkvæmt leiðbeiningum frá Landlækni til almennings varðandi sóttkví, skal einstaklingur í sóttkví halda sig heima við og má ekki fara út af heimili sínu nema brýna nauðsyn beri til. 

Ef orlofshús KÍ er notuð sem sóttkví stofnar það umsjónarmönnum húsanna og þeim félagsmönnum sem koma í næstu útleigu í hættu.

Þá er einnig óheimilt með öllu að nota orlofshúsin fyrir einangrun.

Sjóðfélagar sem munu nýta eignir sjóðsins á næstu vikum eru vinsamlegast beðnir um að þrífa sérstaklega vel með sápu og sótthreinsa alla snertifleti við upphaf og í lok dvalar. Nánari leiðbeiningar má finna í orlofshúsum OKÍ.