Óheimilt að skikka kennara til viðtals hjá trúnaðarlækni

Fréttir|7. desember 2022

Vinnuveitendum er óheimilt að skikka kennara til að hitta trúnaðarlækni. Félagsdómur felldi dóm þessa efnis í síðasta mánuði.

Kennarasamband Íslands sótti málið fyrir hönd Félags grunnskólakennara og benti á þrjú tilvik þar sem skólastjórnendur í Reykjavík fóru fram á að kennarar færu til trúnaðarlæknis áður þeir mættu aftur til starfa að loknum veikindum.

Krafa KÍ laut að því að fá viðurkennt fyrir dómi að vinnuveitanda sé óheimilt, á grundvelli ákvæða kjarasamnings aðila, að skikka starfsmann til að mæta til trúnaðarlæknis vinnuveitanda. Bent er á að minnst er á hlutverk trúnaðarlæknis í tilteknum ákvæðum kjarasamnings og þar kemur fram að krefjast megi vottorðs trúnaðarlæknis en hvergi er minnst á að hægt sé að skikka starfsmann til að mæta til viðtals eða skoðunar hjá trúnaðarlækni. „Aftur á móti geti það verið hlutverk trúnaðarlæknis að leggja mat á læknisvottorð sem starfsmaður hefur framvísað, sem og að óska eftir frekari upplýsingum frá viðkomandi lækni“, segir í dómi Félagsdóms.

Niðurstaðan

Félagsdómur féllst á kröfu Kennarasambandsins og segir í dómnum að þess sé hvergi getið í kjarasamningi aðila að kennara sé skylt að mæta til trúnaðarlæknis vinnuveitanda. „Í þeim efnum verður jafnframt að horfa til þess að það er meginregla að sjúklingur geti leitað til þess læknis sem honum henti best“.

Þá segir í dómnum að horft verði til þess að heilsufar telst til einkamálefna fólks sem nýtur verndar í stjórnarskrá. „Þá má ljóst vera að heimild vinnuveitanda til að gefa starfsmanni fyrirmæli um að mæta til trúnaðarlæknis í því skyni að upplýsa um heilsufar sitt og eftir atvikum sæta skoðun telst íþyngjandi í garð starfsmannsins. Telja verður að orða hefði þurft svo afdráttarlausa heimild vinnuveitanda með skýrum hætti í kjarasamningi aðila hafi ætlunin verið að semja um hana,“ segir í dómi Félagsdóms.

Niðurstaðan er því sú að vinnuveitendum er ekki heimilt að skikka starfsmenn til að mæta til trúnaðarlæknis.

Gísli Guðni Hall hæstaréttarlögmaður flutti málið fyrir hönd Kennarasambands Íslands.

Dómur Félagsdóms