Óheimilt að fella orlof inn í uppsagnarfrest

Félag framhaldsskólakennara vann á dögunum mál gegn ríkinu þar sem tekist var á um tengsl orlofsréttar og uppsagnarfrests.
Nýlega féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem deilt var um tengsl orlofsréttar og uppsagnarfrests framhaldsskólakennara. Málavextir voru þeir að kennara var sagt upp störfum í lok aprílmánaðar 2021 og féll uppsagnarfrestur þannig inn í orlofstímabil. Áður en kennaranum var sagt upp störfum hafði komist á samkomulag milli aðila um orlofstöku hans innan þess tímaramma sem skólinn væri ekki að störfum yfir sumarið. Strax í kjölfar uppsagnarinnar gerði kennarinn athugasemd við það að orlof hans félli innan uppsagnarfrestsins.
Orlof tími hvíldar
Íslenska ríkið taldi að í ljósi eðlis starfsemi framhaldsskóla, þess ramma sem þeim væri búinn með lögum og kjarasamningi og þess að orlofstími kennara stýrðist af starfstíma skóla, yrði að telja heimilt í tilviki kennara að fella orlofstöku þeirra inn í uppsagnarfrest. Þannig byggði íslenska ríkið á því að framhaldsskólakennarar nytu ákveðinnar sérstöðu á íslenskum vinnumarkaði. Dómurinn taldi að þrátt fyrir þessa sérstöðu þá breytti það því ekki að almennt yrði talið íþyngjandi fyrir kennara að taka orlof á þriggja mánaða uppsagnarfresti enda tilgangur uppsagnarfrests hjá framhaldsskólakennurum, rétt eins og hjá öðru launafólki, sá að gefa þeim færi til að leita sér að nýrri vinnu. Tilgangur orlofs væri einnig sá hinn sami hjá þessum hópi launafólks og öðrum, það er, nýting þess tíma til hvíldar og endurheimtar.
Vísaði dómurinn sérstaklega til þess að þar sem að ársvinnuskylda kennara færi fram á starfstíma skóla mætti segja að kennarar vinni af sér yfir veturinn. Leiddi þetta að mati dómsins síst til þess að framhaldsskólakennarar hefðu minni þörf en annað launfólk fyrir þá endurnæringu og hvíld sem í orlofsrétti fælist og sem kennarar hafa unnið sér inn með aukinni vinnu yfir skólaárið. Var því ekki fallist á með íslenska ríkinu að það leiddi með einhverju móti af þeim ramma sem á við um störf framhaldsskólakennara að við lok ráðningar væri hægt að fella orlof kennara inn í uppsagnarfrest án hans samþykkis. Um slíkt hafi ekki verið samið í kjarasamningi aðila, ólíkt því sem til dæmis hefur verið gert með sérákvæði um hvernig líta skuli á veikindi kennara í orlofi, auk þess sem ekki er kveðið á um það í lögum eða öðrum reglum að uppgjör orlofs við lok ráðningartíma kennara skuli vera með öðrum hætti en annars launafólks.
Óheimilt að fella orlof í uppsagnarfrest
Niðurstaða dómsins var því að íslenska ríkinu var óheimilt að fella 30 daga orlof kennarans inn í uppsagnarfrest án þess að hann samþykkti það eftir að honum var sagt upp störfum, en samkomulag það sem lá fyrir um orlofstöku var gert áður en til uppsagnar kom og hafði því ekkert gildi.
Í ljósi þess að íslenska ríkið hélt því fram í málinu að uppgjör til kennarans væri í samræmi við almenna framkvæmd á uppgjöri við starfslok kennara hjá ríkinu hvetur Félag framhaldsskólakennara þá félagsmenn sem telja að ekki hafi verið rétt staðið að orlofsuppgjöri í tengslum við uppsögn að leita sem fyrst til félagsins.
Dómnum verður ekki áfrýjað.