Öflugt félagslíf kennara á eftirlaunum

Bókaklúbbur Félags kennara á eftirlaunum hefur verið starfandi um langt skeið. Klúbbfélagar koma saman í húsakynnum KÍ, spjalla um bækur og njóta veitinga.
Ekki eru strangar reglur í klúbbnum heldur koma félagar með bækur sem þeim þykja áhugaverðar, deila með öðrum og lána jafnvel.
Félag Kennara á eftirlaunum (FKE) á sér langa sögu en félagið var stofnað árið 1980. FKE er eitt af aðildarfélögum KÍ, með um 2.200 félagsmenn nú um stundir, og sinnir málefnum þeirra sem hafa starfað við kennslu.
Heilmikið félagslíf er í boði hjá FKE, gönguferðir eru í boði og þá er efnt til svokallaðra Grandfunda þar sem félagar koma saman á Grand Hótel Reykjavík. Á þessum fundum er gripið í spil, gestir skemmta viðstöddum og svo er auðvitað boðið upp á kaffi og með því.
Félagsmenn KÍ sem sjá fram á starfslok ættu að kíkja á vefsíðu félagsins, fke.is, og skrá sig til leiks.
