Ofbeldi nemenda vanmetið vandamál í skólakerfinu

Fréttir|11. júlí 2024

„Nemendur sem beita ofbeldi eru viðvarandi alþjóðlegt vandamál í skólaumhverfinu,“ segir Soffía Ámundadóttir kennari. Soffía rannsakaði reynslu skólastjórnenda af ofbeldi af hálfu nemenda í meistaraverkefni sínu.

Nemendur sem beita ofbeldi eru viðvarandi alþjóðlegt vandamál í skólaumhverfinu,“ segir Soffía Ámundadóttir kennari. „Til að stöðva ofbeldið þarf að hafa stífan ramma og afleiðingar við hegðun og þá tökum við valdið frá þeim og stjórnina.“ Soffía rannsakaði reynslu skólastjórnenda af ofbeldi af hálfu nemenda í meistaraverkefni sínu. Niðurstöðurnar vekja upp áleitnar spurningar um ofbeldi nemenda og hvaða verkfæri stjórnendur hafa til að leysa slík mál. Skólavarðan spurði hana út í vandann, umfang hans, afleiðingar og bjargráð.

„Áttavitinn minn í lífinu hefur alltaf beint mér að vinnu með börnum,“ segir Soffía Ámundadóttir. Eftir að hafa heillast af skólanum og starfinu sem þar er unnið snemma á skólagöngu sinni vissi hún að hana langaði að verða kennari og knattspyrnuþjálfari. „Ég er alin upp í Breiðholtinu og gekk í Fellaskóla. Æska mín var góð og gamli skólinn minn hafði þau áhrif að ég sá framtíðarstarf mitt snemma sem kennara.“

Síðan þá hefur Soffía komið víða við á sínum þrjátíu ára ferli í skólanum. Hún er bæði leik- og grunnskólakennari, með BA-próf í táknmálsfræðum og MA-próf í stjórnun menntastofnana, auk þess sem hún þjálfar knattspyrnu. Hún hefur starfað í Brúarskóla, sérskóla fyrir nemendur með tilfinninga- og hegðunarvanda, síðastliðinn áratug eða svo.

Erfiðleikar nemenda sem beita ofbeldi eru margþættir og þörf er á heildrænum stuðningi og lausnum

Vildi leggja sitt af mörkum við að leysa vandann

Í meistararitgerð sinni, Við sættum okkur ekki við ofbeldi, rannsakaði Soffía reynslu skólastjórnenda af nemendum sem beita ofbeldi í skólanum. „Ástæða þess að ég valdi þetta viðfangsefni var áhugi minn á ofbeldi og hegðunarvanda nemenda sem ég vinn með á hverjum degi í Brúarskóla. Einnig varð ég vör við óöryggi og úrræðaleysi í almennum skólum og vildi leggja mitt af mörkum við að kortleggja vandann,“ segir Soffía, sem hefur veitt ráðgjöf, skrifað greinar og haldið málþing og fyrirlestra um efnið.

„Nemendur sem beita ofbeldi eru viðvarandi alþjóðlegt vandamál í skólaumhverfinu,“ segir Soffía. Kennarar, starfsfólk skólans og samnemendur geta verið fórnarlömb aðstæðna og ofbeldismál geta verið mjög alvarleg, bætir hún við. Hér á landi hafi vandinn því miður ekki verið nægilega vel skoðaður en merkja megi aukningu á ofbeldi nemenda og alvarlegum birtingarmyndum þess. Samkvæmt skólastjórnendum megi greina að líkamlegt ofbeldi grunnskólanema sé að verða bæði tíðara og grófara. „Ofbeldi nemenda er verulega vanmetið vandamál í skólakerfinu. Þetta er viðkvæmt umræðuefni og þykir „tabú“,“ segir Soffía.

Þörf á heildstæðri nálgun á vandann

Þessi mál geta reynst erfið viðfangs fyrir alla hlutaðeigandi. „Niðurstöður erlendra rannsókna sýna að nemendur beita ofbeldi vegna vanlíðunar, geðrænna erfiðleika, skorts á viðeigandi bjargráðum, samskiptahæfni og fleiri þátta,“ útskýrir Soffía. Í vissum tilvikum noti þeir ofbeldi til að reyna að leysa vandamál og öðlast vald. Oft og tíðum séu þetta jaðarsettir nemendur í áhættuhegðun sem eigi erfitt með að takast á við ákveðnar tilfinningar og aðstæður eins og gremju, vonbrigði og reiði. Nauðsynlegt sé að skoða áhættuþætti einstaklings, fjölskyldu, jafningja, félagslega og samfélagslega.

„Erfiðleikar nemenda sem beita ofbeldi eru margþættir og þörf er á heildrænum stuðningi og lausnum,“ segir Soffía. „Til að stöðva ofbeldið þarf að hafa stífan ramma og afleiðingar við hegðun. Þannig tökum við valdið frá þeim og stjórnina.“ Þá þurfi að gefa sér góðan tíma í að byggja upp traust og mynda góð tengsl við þessa nemendur.

 

Hvað er ofbeldi?

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (2003) skilgreinir ofbeldi sem vísvitandi beitingu líkamlegs afls eða valds gegn öðrum, sjálfum sér, hópi eða samfélaginu, sem líklegt er að valdi líkamlegu tjóni, andlegum skaða eða dauða. Ofbeldi er skipt upp í fjóra flokka: Líkamlegt, andlegt, vanrækslu og kynferðislegt ofbeldi.

Samkvæmt vef Kennarasambands Íslands (2023) er líkamlegt ofbeldi árás á líkamann, t.d. að stinga með hníf eða einhverju oddhvössu, hlaupa á, taka kyrkingartaki, sparka, slá, hrinda, hindra för, halda fast, kasta hlutum í, klípa, bíta, klóra eða hrækja á. Rannsóknir sýna að nemendur skilgreina ofbeldi of vítt og þau normalisera ofbeldið. Mjög mikilvægt er að setjast niður með nemendum og endurskilgreina út frá viðmiðum samfélagsins.

 

Óöryggi og vonleysi oft ráðandi

Ábyrgð skólans og starfsfólks hans er mikil og mikilvægt að koma til móts við þarfir þessara nemenda og hjálpa þeim að þroskast við öruggar aðstæður, segir Soffía. Hins vegar upplifir starfsfólk skóla sig oft óöruggt og vonlítið í krefjandi aðstæðum með nemendum, eins og staðan er núna.

„Þetta er mikil áskorun fyrir skólasamfélagið. Biðlistar í úrræði eru langir og það er skortur á miðstýrðum verkferlum, viðbragðsáætlunum, markvissari skráningu, samvinnu við foreldra og öflugri fræðslu fyrir alla aðila skólasamfélagsins. Starfsumhverfi skólans er að ýmsu leyti ófullnægjandi, umræðan á samfélagsmiðlum óvægin og flókið ferli að vinna úr grófum ofbeldismálum.“

Þá megi merkja skort á stuðningi frá stjórnendum til kennara, en stuðningur við starfsfólk skóla er lykilatriði samkvæmt Soffíu. „Kennarar sem fá stuðning beita frekar árangursríkum aðferðum til að fyrirbyggja eða draga úr hegðunarerfiðleikum.“

Allir þurfa að leggja hönd á plóg

Niðurstöður rannsóknar Soffíu varpa ljósi á mikilvægi þess að ofbeldi innan veggja skóla sé tekið föstum tökum og að faglegur stuðningur sé aukinn, sem og mun markvissari aðkoma skólayfirvalda og annarra opinberra stofnana að málefnum nemenda sem beita ofbeldi.

„Stjórnendur skóla þurfa að skoða skólann sinn út frá nemendum sem beita ofbeldi, þeirri skólamenningu sem ríkir hverju sinni og stjórnunarstíl, ásamt því að fara yfir aðferðir kennara, aðstöðu og þarfir nemenda og samstarf við foreldra. Allir þessir þættir hafa áhrif og segja til um þann árangur sem næst með nemendur.“

Við þurfum að taka valdið til baka frá foreldrum og nemendum. Við erum fagfólkið og mörk okkar þurfa að vera á hreinu. Núna þurfum við að fara í samfélagslegt átak, stíga fast til jarðar og ekki sætta okkur við ofbeldi, í hvaða mynd sem er.

Mikilvægt sé að stjórnendur og starfsfólk skólans þekki vel til þeirra úrræða og ferla sem til eru, bendi á það sem betur má fara í málefnum nemenda sem beita ofbeldi og að skólasamfélagið sé tilbúið að opna umræðuna um þetta viðkvæma málefni.

Taka þurfi á þessum málum af festu og koma þeim í réttan farveg. „Skólayfirvöld, skólinn, sveitarfélögin, háskólar, fagaðilar og nærumhverfi nemenda þurfa að standa saman þegar erfiðleikar steðja að,“ segir Soffía. „Þessi kerfi samfélagsins þurfa að skilgreina vandann og finna leiðir til að hlúa að uppeldi, velferð, heilbrigði og tryggja öryggi þessara nemenda.“

Einnig þurfi að stuðla að auknum skilningi og tillitssemi gagnvart nemendum sem beita ofbeldi og taka mið af skólasamfélaginu í heild. „Það þarf að bjóða upp á fræðslu fyrir alla, námskeið um málefnið, þjálfa stjórnendur og kennara með markvissum hætti út starfsævina. Því er mikilvægt að innvikla umræðu um ofbeldismál og úrræði inn í starfsþróun þessara hópa.“

 

Meira um Soffíu

„Ég er eins og Georg Bjarnfreðarson með 5 háskólagráður, enda veit ég ekkert skemmtilegra en að vera í námi. Ég byrjaði á að taka leikskólakennarann í gamla Fósturskólanum, bætti svo við mig grunnskólakennaranum, fór þá í táknmálsfræði og táknmálstúlkinn, er með UEFA A knattspyrnu þjálfaragráðu og kennaragráðu og tók svo meistaranám við Háskóla Íslands í stjórnun menntastofnana.“

„Ég hef unnið sem leikskólakennari og grunnskólakennari síðustu 30 ár og vil hvergi annars staðar vera en í lifandi skólastarfi. Sérhæfing mín er táknmál og hegðunarvandi nemenda og ég hef unnið í skólum sem sérhæfa sig í þessum málefnum, sérskólunum Sólborg og Brúarskóla. Ásamt því er ég að kenna í Endurmenntun Háskóla Íslands námskeiðið Ofbeldi nemenda og hegðunarvandi.“

„Ég er líka kennari hjá Knattspyrnusambandi Íslands þar sem ég þjálfa þjálfara og þjálfa hjá félaginu mínu Val. Sem gamall leikmaður í Val tel ég það skyldu mína að gefa til baka til félagsins og hef þjálfað yngri flokka þar í 30 ár.“

„Í vetur hef ég farið í um 15 skóla á landinu, hitt starfsfólk og farið vel yfir fræðin um ofbeldishegðun nemenda, hjálpað þeim að kortleggja vandann hjá sér og setja af stað vinnu til að fyrirbyggja vandamálið. Á næstu mánuðum er ég pöntuð til Vestmannaeyja, Selfoss, Ísafjarðar, Egilsstaða og Akureyrar.“

 

Lausnir leynast víða

„Við getum gert margt til að leysa þessi mál betur að mínu mati og ég hef útbúið gátlista fyrir skólann og kennarann og sett upp aðgerðalista sem hægt er að styðjast við. Fyrir þennan nemendahóp verðum við að hugsa út fyrir boxið og út fyrir Aðalnámskrá grunnskóla. Við þurfum að kortleggja vandann, fara í fyrirbyggjandi aðgerðir, grípa inn í áður en hlutir gerast og þekkja merkin hjá nemendum.“

Árangursríkt er að notast við hvatningabækur, félagsfærnisögur og umbunarkerfi, segir Soffía. Samvinna við foreldra er mikilvæg og einnig að fá nemandann með í lausnaleit. Gott er að skoða umhverfi nemandans í skólanum; hentar það honum að vera inni í stórum bekk, hvar er hann staðsettur í bekknum og er mögulega hægt að mæta betur þörfum hans inn í bekk? Einnig geti verið gott að setja upp skýrt sjónrænt skipulag, huga vel að næringu og leiðum til að losa orku. „Við þurfum ekki að bíða eftir greiningum, sem oft getur tekið langan tíma, heldur frekar að hefja vinnu strax. Að skima fyrir þessum nemendum í leikskóla er mikilvægt og grípa strax inn í,“ segir Soffía.

„Við starfsfólk skólanna segi ég, skoðið vel tryggingarnar ykkar. Þegar kemur að ofbeldi nemenda erum við starfsfólk skólanna illa tryggð. Sveitarfélögin tryggja okkur ekki ef nemendur beita okkur ofbeldi og við þurfum að fara í mál við foreldra þessara nemenda ef eitthvað alvarlegt kemur upp á. Ég tel að þetta þurfi að endurskoða, taka samtalið við sveitarfélögin og setja inn í næstu kjarasamninga.“

Þá bendir Soffía á mikilvægi þess að skrá niður öll atvik. „Það sem er ekki skráð gerðist ekki. Skráningar eru mikilvægar heimildir sem halda vel utan um málin, tölfræði og þörfina fyrir aðstoð. Gott er að hafa miðlæga skráningu, sem til dæmis skrifstofustjóri heldur utan um eða stjórnendur. Vegna persónuverndarlaga getum við ekki skráð í Mentor en getum vísað í skráningar þar. Einnig er ekki gott að skrifa í stílabækur eða í eigið skjal sem gæti þá farið á flakk eða týnst.“

Einnig þurfi skólar landsins að taka sig á í að tilkynna ofbeldi af hálfu nemenda til Vinnueftirlitsins og barnaverndar. „Samkvæmt tölum frá Vinnueftirlitinu voru 80 tilkynningar á 5 árum sem tengdust ofbeldi nemenda á kennurum. Ég tel að þessar tölur séu langt frá raunveruleikanum,“ segir Soffía og bætir við að lokum: „Við þurfum að taka valdið til baka frá foreldrum og nemendum. Við erum fagfólkið og mörk okkar þurfa að vera á hreinu. Núna þurfum við að fara í samfélagslegt átak, stíga fast til jarðar og ekki sætta okkur við ofbeldi, í hvaða mynd sem er.“