Ofbeldi gagnvart kennurum – Falinn vandi sem taka verður á

Fréttir|6. maí 2021

Eitt alvarlegasta viðfangsefnið sem blasir við kennurum er því miður falið og er allt að því „tabú“.

Þau eru mörg verkefnin sem verið er að kljást við í grunnskólum landsins, sum eru sýnileg en önnur krauma undir yfirborðinu og eru falin flestum. Eitt alvarlegasta viðfangsefnið sem blasir við kennurum er því miður falið og er allt að því „tabú“. Hér á ég við ofbeldi gagnvart kennurum en í grófum dráttum mætti skipta því í þrennt:

  1. Ofbeldi sem kennarar verða fyrir af hálfu nemenda
  2. Ofbeldi sem kennarar verða fyrir af hendi foreldra
  3. Ofbeldi sem kennarar verða fyrir af yfirmönnum sínum

Öll viðfangsefni af þessum toga eru erfið viðureignar fyrir kennara enda eru þeir berskjaldaðir, njóta lítillar sem engrar verndar og þegar á reynir mætir þeim oftar en ekki skilningsleysi og jafnvel vantrú. Mál þessarar tegundar hafa nær alltaf alvarlegar afleiðingar, hvort sem er líkamlegar eða andlegar.  

Í þeim tilvikum sem nemandi beitir kennara ofbeldi leiðir það stundum til þess að kennari óskar eftir því að vera færður úr aðstæðum, annað hvort með því að nemandinn verði fluttur til eða kennarinn sjálfur. Kennarinn stendur berskjaldaður eftir ef skólastjóri verður ekki við þessum umleitunum hans. Alltof mörg dæmi eru um að kennarar gefist einfaldlega upp í slíkum aðstæðum og endi mögulega í veikindum eða hætti kennslu, enda standa þeim fáar aðrar leiðir til boða. Þessi snúna staða milli ólögráða einstaklings og kennara er sjaldnast auðleyst, þó svo góðir ferlar og skýrar reglur séu til staðar.

Tilvik ofbeldis af hálfu foreldra má að mörgu leyti setja undir sama hatt. Þau mál geta þó jafnvel verið enn flóknari þar sem kennurum ber skylda til að kenna öllum nemendum og í starfinu ber þeim að aðgreina persónulega hagsmuni og faglega. Ein meginskylda kennara er að vera jákvæð fyrirmynd og vinna að jákvæðum skólabrag og getur viðhorf foreldra til þessara verkefna verið ólíkt og sitt sýnist hverjum. Þannig getur kennari staðið frammi fyrir því að auk þess sem rýnt er í hans faglega sjálf, séu öll hans samskipti innan skóla og utan til skoðunar.  

Þrátt fyrir að skólar séu stofnanir sem eiga að vinna með ólík sjónarmið og ýta undir styrkleika hvers og eins, þá eru fjölmörg dæmi um að rót eineltis, sem kennarar verða fyrir í starfi sínu, eigi uppruna sinn hjá skólastjórum. Birtingarmynd þess getur falist í að grafið sé undan fagmennsku og heilindum kennara. Kennarar upplifa mikinn vanmátt í aðstæðum sem þessum og enn á ný eru afleiðingarnar oftar en ekki þær að kennarinn gefst upp. Vanmáttugur kennari hefur þá einu leið að tilkynna einelti til Vinnueftirlits ríkisins sem „hættulegar aðstæður á vinnustað“.

Mál af þessum toga geta verið mjög flókin og skal tekið fram að kennurum getur orðið á í starfi sínu eins og öðrum en hér er ég að leggja áherslu á að gefa verður aðstæðum kennara miklu meiri gaum þegar þessi mál eru vegin og metin.

Þessar þrjár birtingarmyndir ofbeldis eru ekki einungis alvarlegar fyrir kennarana sem fyrir því verða heldur getur fylgifiskur þessa orðið að alvarlegu innanmeini í skólakerfinu sem dregur úr nauðsynlegum krafti kerfisins til að takast á við þær áskoranir sem fylgja því að vinna með börn og ungmenni á leið sinni til þroska.

Það er kominn tími til að horfast í augu við vandann og taka á honum. Ef við höldum áfram að þegja þessi mál í hel, gerum við einfaldlega illt verra.

 

Pistillinn birtist í Fréttablaðinu 6. maí 2021