OECD rannsakar starfsaðstæður og starfshætti í leikskólum

TALIS2018-rannsóknin á starfsaðstæðum, starfsþróun, kennsluháttum og viðhorfum kennara og skólastjóra er alþjóðleg rannsókn Efnahags- og framfarastofnunar (OECD) sem nú er lögð fyrir í þriðja sinn. Áður var lagt fyrir árin 2008 og 2013. Ísland er í hópi um 50 ríkja sem taka þátt á unglingastigi og/eða leikskólastigi.
Nú stendur yfir fyrirlögn TALIS rannsóknarinnar í öllum skólum landsins á unglingastigi og nú einnig á leikskólastigi til loka maímánaðar. Á leikskólastigi er rannsókninni beint til leikskólakennara og annarra starfsmanna sem annast börn á aldrinum þriggja til fimm ára.
TALIS2018-rannsóknin á starfsaðstæðum, starfsþróun, kennsluháttum og viðhorfum kennara og skólastjóra er alþjóðleg rannsókn Efnahags- og framfarastofnunar (OECD) sem nú er lögð fyrir í þriðja sinn. Áður var lagt fyrir árin 2008 og 2013. Ísland er í hópi um 50 ríkja sem taka þátt á unglingastigi og/eða leikskólastigi.
„Rannsóknin býður upp á samanburð við önnur lönd og milli skólastiga um ýmsa þætti sem skipta máli varðandi þróun skólastarfs og starfskilyrði kennara og skólastjóra og sjá má ávinning af rannsókninni þegar horft er til breytinga og mótunar skólastarfs sem nú er mjög í brennidepli. Hún veitir svör við því á hvern hátt starfskilyrði, kennsluhættir og viðhorf eru mismunandi eftir löndum og skólastigum.
Markmið rannsóknarinnar er að fá mynd af landinu í heild, ekki einstökum skólum eða sveitarfélögum. Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar á næsta ári. Svörin eru trúnaðarmál og verða ekki birt undir nafni skóla, sveitarfélags eða þátttakenda.
Menntamálaráðneytið fjármagnar rannsóknina hér á landi og samtök kennara og skólastjóra hafa veitt margvíslega aðstoð við undirbúning og hvetja til þátttöku. Forprófun spurningalistanna fór fram í fyrra og nú er komið að aðalfyrirlögn," segir í fréttatilkynningu.
Spurningalisti er lagður rafrænt fyrir starfsfólk, kennara og skólastjóra á unglinga- og leikskólastigi. Gagnaöflun truflar því ekki starfið með börnunum beint. Þátttakendur fá veflykil og svara spurningalistanum þegar hentar eða þegar stjórnendur veita svigrúm til þess.
Þátttaka er valfrjáls og hægt er að hætta þátttöku hvenær sem er, eða sleppa einstökum spurningum. OECD gerir kröfur um mjög góða þátttöku í hverju landi til þess að gögnin teljist áreiðanleg og séu birt með gögnum annarra landa. Það er því mikilvægt að starfsfólk skólanna svari spurningalistanum ýtarlega og nýti þetta tækifæri til þess að skoða eigin starfshætti í samhengi við önnur lönd.
Menntamálastofnun sér um framkvæmdina á Íslandi. Alþjóðleg stjórn rannsóknarinnar er í Hamborg og stýra rannsókninni m.a. aðilar frá IEA (International Association for the Evaluation of Educational Achievement) og Statistics Canada í Ottawa, í umboði OECD.