Ódýr framhaldsskóli á Íslandi

Fréttir|20. mars 2014

„Aðeins þrjár OECD-þjóðir verja árlega lægra hlutfalli af meðal landsframleiðslu sinni til hvers framhaldsskólanemanda en Íslendingar. Því má segja Íslendingar séu meðal þeirra þjóða sem verja árlega minnstu af því sem er til skiptanna til þess að mennta hvern framhaldsskólanema“.

Þetta kemur fram í nýrri grein Odds S. Jakobssonar, hagfræðings Kennarasambandsins hér á vefnum. Þar svarar hann fullyrðingum í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar um að Íslendingar séu meðal þeirra þjóða sem verja hvað mestu fé í framhaldsskólana þegar miðað er við hlutfall þjóðartekna.