Óður til Skólavörðunnar

Fréttir|13. júní 2023

Skólavarðan á „sína sögu, sigurljóð og raunabögu. Hún er, eins og nafnið bendir ótvírætt á, tengd við menningu þessa lands. Saga hennar, ber vott um íslenskt lundarfar, dug og þrautseigju, eins og það var hér áður þegar menn töluðu færra, en framkvæmdu þó.“ Svona er Skólavörðunni, minnismerkinu sem fagtímarit kennara sækir heiti sitt til, lýst í tímaritinu Brautinni frá 1929.

Og greinarhöfundur Brautarinnar heldur áfram: „Þegar mentaþráin varð að vera nægjusöm, ef hún átti að fá nokkuð til að svala sér á. Ber byggingarsaga hennar vott um stefnufestu, framkvæmd og óeigingirni og verður því, um leið og hún er sögulegt minnismerki Reykjavíkurbæjar, minnismerki um einstaklingstrygð og manndáð. Til hennar gengu menn snemma á morgnana og seint á kvöldin. Frá henni sást hin dýrðlega sólaruppkoma og hið óviðjafnanlega sólsetur og hinn fagri fjöllum lukti sjóndeildarhringur sem umlykur Reykjavíkurbæ.“

Og líkt og blaðamaður Brautarinnar gerði á sínum tíma spyrjum við: Hvernig stendur á þessu minnismerki? Til hvers var það reist? Hver gerði það og hve gamalt er það?

Vel hlaðin, há og fönguleg

Skólavarðan hófst sem hefð skólapilta í Skálholti. Drengirnir, sem mæltu sér mót á ákveðnum stað á hverju hausti til að ríða samferða í skólann, stöldruðu við á þremur stöðum á leiðinni og æptu „signum!“, eins og venja var fyrir. Þriðji og síðasti áfangastaðurinn var við byrjun heimreiðarinnar að staðnum. Þar hlóðu piltarnir mikla og vandaða ferstrenda vörðu sem þeir kölluðu Skólavörðu. Henni var svo lýst í Lesbók Morgunblaðsins 1979:

Bæði var nú, að hún var vel hlaðin og að henni var vel haldið við fram á árið 1784, sem var seinasta ár Skálholtsskóla

Þeir drengir sem gert var að flytjast yfir í Hólavallaskóla í Reykjavík eftir lokun Skálholtsskóla héldu hefðinni áfram þegar í borgina var komið. Þeir riðu saman að skólabyggingunni, stöldruðu við í þrígang á leiðinni og hrópuðu herópið; fyrst við Elliðaár, svo Öskjuhlíð og að lokum á Arnarhólsholti, gegnt skólabyggingunni. Við síðasta viðkomustaðinn hlóðu þeir nýja Skólavörðu 1795 „og var hún bæði há og fönguleg. Blasti þar varðan við skólanum og skólinn við vörðunni,“ eins og segir í Lesbókinni.

Varðan, og staðsetning hennar, virðist hafa verið þýðingarmikil fyrir skólapiltana. Í Brautinni árið 1929 segir: „Hafa þeir að líkindum orðið fegnir að hlaupa út úr skólahíbýlum sínum til að fá sér hreint loft og hitaspretti, því lífsþægindi voru þar af mjög skornum skamti.“ Til dæmis bjuggu drengirnir við knappt fæði og föt og hýbýli þeirra voru þröng, köld og dimm og þrjátíu drengir urðu að deila átta rúmum. „Þessir menn, sem mentaþráin hefur tekið útá skólabrautina, en áttu við marga örðugleika að búa urðu að sækja hreint loft og hita út fyrir skólaveggina.“

Vörðu-bras og brölt

Seinna var Hólavallaskóli fluttur að Bessastöðum á Álftanesi, því óhollt þótti „fyrir hinn andlega þroska pilta að hafa skólann í bænum,“ og eftir það var lítið hirt um vörðu piltanna. „Voru þá ekki skólapiltar að hressa hana við, og bæarmenn létu sig engu skifta hvað um hana yrði. Hrundi hún því smám saman og var svo komið árið 1834, að hún var orðin grjóthrúga ein,“ sagði í Lesbók Morgunblaðsins 1979.


Síða úr ljósmyndaalbúmi Christian Schierbeck læknis frá 1902. Í færslu læknisins með myndinni segir í íslenskri þýðingu: „Skólavörðustígur í Reykjavík. „Skólavarðan“ í bakgrunni: Hrífandi útsýnisturn með útsýni yfir jökla og fjöll, snjó og haf – öll Reykjavík fyrir fótum manns og höfnin sömuleiðis. Því miður misheppnuðust ljósmyndirnar, þær urðu of smáar.“

Ekki sættu allir sig við þau endalok Skólavörðunnar og upp úr 1830 tóku kaupmenn Reykjavíkur sig saman og gengust fyrir því að varðan yrði hlaðin upp á ný. Vörðuna kölluðu þeir nú „Kriegers Minde“, til heiðurs Lorentz Angel Krieger stiftamtmanni sem dvaldi hér á árunum 1829 til 1836. Vaninn var þó yfirsterkari og samkvæmt Brautinni var ávallt talað um Skólavörðuna, þrátt fyrir skýra áletrunina.

Varðan til heiðurs stiftamtmanninum stóð í nokkra áratugi en var alveg hrunin í rústir 1860. Aftur var tími til kominn að aðhafast. Í þetta sinn tóku nokkrir Reykvíkingar sig saman undir forystu Árna Thorsteinssonar, sem síðar varð landfógeti, og höfðu samskot til þess „að reisa Skólavörðuna úr rústum bænum til prýðis og bæjarbúum til skemmtunar“, eins og haft er eftir Árna í Brautinni 1929.

Nokkuð fé safnaðist til verksins sem gekk ágætlega framan af. En þegar varðan var komin vel á veg hrundi allt saman. Nú var engin Skólavarða og enginn bjóst við að hún myndi rísa úr rústum framar.

Nú var engin Skólavarða og enginn bjóst við að hún myndi rísa úr rústum framar

Kanselíráð endurreisir vörðuna

Og þó gerðist það aðeins nokkrum árum síðar, eða upp úr 1868, að borgarbúar fóru að taka eftir því sér til undrunar að grjóti var ekið að rústum gömlu vörðunnar og menn höfðust þar við. Heimamenn undruðust á þessum vendingum, enda vissi enginn hver lagði til féð þótt allir reikningar væru greiddir. Hér hlyti að vera einhver „hulin hönd og eigi févana“ á ferð.

Eins og oft er í litlum samfélögum leið ekki á löngu þar til ráðgátan var leyst. Í Þjóðólfi 1868 segir: „Það er nú eigi orðið neitt launúngarmál, að bæarfógeti vor herra A. Thorsteinson kanselíráð hefir einn gengizt fyrir byggingu þessari og lagt fyrir um alla tilhögun og fyrirkomulag, og lagt út allt fé til efnis og verkalauna.“

Engu var til sparað – ekki einu sinni stóru orðin - eins og sést á lýsingum blaðamanns Þjóðviljans á nýju vörðunni, sem var opnuð almenningi við hátíðlega athöfn landfógetans 21. október 1868: Nú stendur hún „albúin einsog nýbygðr nýuppmúraðr kastali, einsog fuglinn Fönix risinn úr öskunni. Það er ekki að undra, þóað detti ofanyfir ferðamenn að sjá þetta sannarlega vandaða og snotra steinsmíði svona allt í einu albúið áðren nokkurn varði, og hafi ekki getað átt þess neina von, því Reykvíkínga sjálfa rekr þar í ramma stanz.“



Skólavarðan á Skólavörðuholti í allri sinni dýrð. Magnús Ólafsson, „ljósmyndari Reykjavíkur“ smellti af einhvern tímann á árunum 1910-1920.

Hefði getað staðið um aldir

Hin nýja Skólavarða kanselíráðsins, ferstrend að utan og jafnbol, 15 álnir á hæð frá stöpli, að meðtöldum handriðunum, útbúin sjónpalli þaðan sem var næsta víðsýnt yfir allt, að endingu látin víkja fyrir minnismerki Leifs heppna upp úr 1930, eftir að hafa „þolað storma og regn“ í rúm sextíu ár. Þá þótti varðan, sem var svo traustlega byggð að hún hefði getað staðið um aldir, að mati höfundar Lesbókarinnar 1979, ekki njóta sín jafn vel og áður, enda orðin ein af mörgum mannvirkjum í sístækkandi byggð.

Skólavarðan er enn á vörum og í minnum margra nú 233 árum eftir að skólapiltar í Skálholti reistu þá fyrstu og 154 árum eftir að Árni Þorsteinsson reisti þá síðustu. Miðað við áðurnefndar og eftirfarandi lýsingar á Skólavörðunni í Brautinni 1929 er það kannski ekki að undrast:

„Skólavarðan er eins og aldin móðir þessa bæjar. Hún var eftirspurð og aðsótt af öllu ferðafólki, sem til bæjarins kom. Hún var einnig leiðarvísir fyrir þá, sem sóttu lífsbjörg sína, út á Faxaflóa á litlu bátunum sínum, Skólavarðan var þeim nokkurskonar viti. Hún stóð þá ein á bersvæði og þótti íturvaxin. Hver veit nema margar af þeim framkvæmdar- og framfarahugsjónum sem síðar hafa lyft þessum bæ, hafi einmitt vaknað hjá Skólavörðunni. Þar, sem land og sjór blasti við auganu, og þá um leið svo ótal margt sem þyrfti og mætti gera bæjarfélaginu og landi til gagns.“

Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.

„Hún blasti fyrst við sjónum allra, sem til bæjarins komu, hvort sem komið var á landi eða sjó. Og hún var svo að segja eina bæjarprýðin, enda voru þá engin hús nærri, er skyggt gætu á hana. Og nú breytti holtið um nafn, það var ekki lengur kallað Arnarhólsholt, heldur Skólavörðuholtið.“