Óásættanleg niðurstaða kjararáðs

Fréttir|2. nóvember 2016

Í gærkvöldi fundaði stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara til að fara yfir þá stöðu sem upp er komin á vinnumarkaði með ákvörðun kjararáðs um hækkun launa forseta Íslands, alþingismanna og ráðherra.

Grunnskólakennarar hafa tvívegis hafnað kjarasamningi m.a. vegna þeirra launahækkana sem í boði hafa verið. Þrátt fyrir að Kennarasamband Íslands sé ekki aðili að rammasamkomulagi því sem gert var á vinnumarkaði hafa ríki og sveitarfélög enga að síður boðið aðildarfélögum KÍ það sama og fólst í því samkomulagi. Launaþróun kennara og stjórnenda innan KÍ skuli vera 30,5% í heildina á árabilinu 2013-2019. Ekki sé svigrúm til að fara út fyrir þann ramma.

Það algerlega óásættanlegt að kjararáð telji eðlilegt að hækka laun einstakra hópa langt, langt umfram það sem þorra launamanna stendur til boða. Það verður ekki nóg fyrir komandi ríkisstjórn að gefa strax út yfirlýsingu um að þetta verði dregið til baka – hún verður að tryggja að slíkt gerist ekki aftur.

Að öðrum kosti verður ekki hægt að líta öðru vísi á en að þingið sjálft og æðstu ráðamenn þjóðarinnar muni bera ábyrgð á því að sá margumtalaði stöðuleiki sem ekki hefur mátt hrófla við hverfi eins og dögg fyrir sólu. Í aðdraganda alþingiskosninga hafa þingmenn sjálfir lagt ofuráherslu á þennan sama stöðugleika og að hann verði að halda til að tryggja velferð í landinu. Ákvörðunina verður að draga til baka.

Hin leiðin er að tryggja að aðrir hópar samfélagsins fái ekki lakari leiðréttingar en kjararáð býður upp á. Félag grunnskólakennara er reiðubúið í viðræður um slíkar leiðréttingar á launum hvenær sem er.