Nýuppgerð hús OKÍ í Ásabyggð klár til útleigu

Fréttir|9. janúar 2024

Hægt er að bóka nýuppgerða bústaði Orlofssjóðs KÍ í Ásabyggð á orlofsvefnum.

Ásabyggð 38 og 39, tvær af eignum Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands (OKÍ) í Hrunamannahreppi, eru klárar til útleigu eftir „andlitslyftingu“ frá Fröken Fix hönnunarstúdíói. Hægt er að bóka eignirnar á orlofsvefnum.

„Við erum mjög ánægð með útkomuna og verður gaman að heyra hvernig félagsmönnum líkar við breytingarnar,“ segir Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri OKÍ.

Nýja skipulagið rúmar fjóra gesti í eitt hjónaherbergi og eitt kojuherbergi. Allt innanhúss var tekið í gegn og endurnýjað. Útihlutinn verður hins vegar að bíða þar til í vor. Húsin eru lítil, eða 53 fermetrar, og markhópurinn því helst einstaklingar, pör og litlar fjölskyldur.

Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Ásabyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi. Flúðir er vinsæll staður að heimsækja og er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði bæði á staðnum og í næsta nágrenni. Ásabyggð er stuttu fyrir utan aðalkjarna þorpsins og liggja sumarhúsin í huggulegri og gróðurmikilli hlíð.