Nýtt skipurit og nýtt húsnæði

Fréttir|29. apríl 2015

Talsverðar breytingar eru lagðar til á starfsemi KÍ í nýrri úttekt Capacent. Meðal þeirra er að tekið verði upp nýtt skipurit, starfsemin flutt í nýtt húsnæði og samstarf við önnur landssambönd launafólks aukin.

Á ársfundi Kennarasambands Íslands var kynnt ný úttekt ráðgjafarfyrirtækisins Capacent á starfsemi og þjónustu KÍ. Úttektin var gerð eftir að sjötta þing KÍ fól stjórn samtakanna að fá óháða aðila í slíka vinnu. Jafnframt var stjórn falið að láta gera könnun „á viðhorfum félagsmanna til þjónustu og starfsemi kennarasamtakanna“ eins og það var orðað. Sú könnun hefur þegar verið framkvæmd og hafa niðurstöður hennar verið til umfjöllunar í tveimur síðustu Skólavörðum. Það voru ráðgjafarnir Arnar Jónsson og Þröstur Freyr Gylfason sem unnu úttektina fyrir hönd Capacent, en fyrir ársfund höfðu stjórn og starfsmenn KÍ fengið kynningu á niðurstöðunni.

Aðferðafræðin
Í lokaskýrslu Capacent segir eftirfarandi um þá vinnu sem liggur að baki úttektarinnar: „Í ágúst 2014 til mars 2015 voru tekin viðtöl við kjörna fulltrúa og starfsmenn Kennarasambands Íslands, aðildarfélaga þess og sjóða. Vinnustofur voru haldnar með stjórnum hvers aðildarfélags og sjóða KÍ á sama tímabili. Þá var gerð þjónustukönnun meðal félagsmanna KÍ í nóvember og desember 2014. Loks var unnin afmörkuð greining á rekstri sex sjóða Kennarasambandsins 2011-2014.

Í viðtölunum var kallað eftir upplýsingum um núverandi verkefni starfsmanna, verkaskiptingu þeirra, hvað gengi vel í starfseminni, hvað gengi síður en mestum tíma var varið í að ræða tillögur þátttakenda að úrbótum eða breytingum á starfseminni. Á vinnustofum voru þátttakendur beðnir um að ræða styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri í starfsemi KÍ frá sjónarhorni stjórna. Í þjónustukönnuninni voru mæld viðhorf til ýmissa þátta í þjónustu KÍ og svör greind eftir aðildarfélagi og öðrum bakgrunnsbreytum.“

Tillögur að úrbótum
Í stuttu máli má segja að niðurstöður skýrslunnar felist í ábendingum og ráð- leggingum Capacent til KÍ um hvert skuli stefna. Það verður síðan stjórnar Kennarasambandsins að marka leiðina sem framundan er og ákveða hvaða tillögur henta starfseminni og hverjar ekki. Meðal tillagna Capacent er að gerðar verði talsverðar breytingar á skipuriti KÍ. 

Auk þess koma í skýrslunni fram ýmis konar athugasemdir og tillögur að breytingum. Þær eru settar fram í eftirtöldum ellefu liðum.

  • Framtíðarsýn fyrir Kennarasamband Íslands í heild

Lagt er til að Kennarasamband Íslands skilgreini stefnu sína og leiðarljós til fjögurra ára í senn. Framtíðarsýn fyrir Kennarasambandið í heild verði mótuð þar sem lögð verði áhersla á hver kjarni Kennarasambandsins sé, hlutverk og markmið þess inn á við sem út á við, auk útfærðrar áætlunar um forgangsverkefni og það hvernig markmiðum skuli náð.

  • Reglubundið mat á framkvæmd stefnumála KÍ

Lagt er til að stjórn KÍ meti reglulega framkvæmd stefnumála KÍ inn á við og út á við. Sjónum verði beint að því hvernig til hefur tekist á hverju sviði, þeim árangri sem náðst hefur og hvar skerpa megi á framkvæmd. Við umfjöllun stjórnar verði til nánari útfærsla á framkvæmdaáætlun eða starfsáætlun, þar sem lýst verði markmiðum, leiðum og áföngum. Nauðsynlegt er að slík áætlun verði til reglubundinnar endurskoðunar í öflugri samvinnu innan KÍ.

  • Samskiptastefna KÍ og málsvarahlutverk

Lagt er til að mótuð verði samskiptastefna Kennarasambandsins og samhliða skilgreind meginábyrgð á málsvarahlutverki fyrir hönd stjórnar KÍ. Í samskiptastefnu verði skilgreint hvar KÍ sem samband hefur frumkvæði í samvinnu og samskiptum við ýmsa aðila til að koma hagsmunum sínum á framfæri, hvernig samráði innan stjórnar skuli háttað, hvaða leiðir og miðlar séu notaðir o.s.frv. Við mótun stefnunnar verði lögð áhersla á að horfa inn utanfrá til að tryggja að skipulagið þjóni hlutverki og stefnuáherslum Kennarasambandsins – og að margþættu málsvarahlutverki Kennarasambandsins sé sinnt.

  • Afmörkun á verklagi og verkaskiptingu og samræming milli einstakra félaga og KÍ

Lagt er til að verklag og verkaskipting milli einstakra félaga og Kennarasambandsins verði afmörkuð og samræmd. Hvað heyrir til Kennarasambandsins og hvað til aðildarfélaganna? Markmið- ið verði að nýta til fulls samlegð milli aðildarfélaganna í starfsemi Kennarasambandsins.

  • Jöfnun á flæði verkefna og nýting starfskrafta

Lagt er til að flæði verkefna og nýting starfskrafta verði jöfnuð, með einföldun á samskiptum og boðleiðum milli kjörinna fulltrúa og starfsmanna.

  • Kaup eða leiga á hentugu húsnæði fyrir starfsemi KÍ

Lagt er til að Kennarasamband Íslands kaupi eða leigi sem fyrst hentugt húsnæði fyrir starfsemi KÍ þar sem öllum nútímaþörfum félagsmanna verði sinnt og horft til framtíðar, enda er séð að aðrir kostir duga ekki til.

  • Efling samstarfs um fagleg málefni

Lagt er til að haldið verði áfram að efla samstarf um fagleg málefni, svo sem með fræðslu- og umræðufundum fyrir alla félagsmenn um helstu kjara- og réttindamál, skóla- og menntamál og aðra málaflokka sem efstir eru á baugi hverju sinni.

  • Aukið samstarf við önnur heildarsamtök

Lagt er til að samstarf við aðra innlenda aðila á sama sviði – þ.e. stóru heildarsamtakanna (stéttarfélaga og fagfélaga) – verði aukið. Miðlun upplýsinga um erlent samstarf á vegum KÍ Lagt er til að upplýsingum um þátttöku KÍ og aðildarfélaga þess í erlendu samstarfi verði skipulega haldið til haga og miðlað innan KÍ og aðildarfélaganna.

  • Opnari og bætt samskipti við opinbera aðila

Lagt er til að samskipti við opinbera aðila verði bætt og opnuð, einkum með tilliti til kjaramála og skólamála.

  • Útgáfu- og kynningarmál með hliðsjón af þjónustukönnun

Lagt er til að niðurstöður úr viðhorfskönnun meðal félagsmanna KÍ til þjónustu og starfsemi Kennarasambands Ísland verði nýttar við útgáfu- og kynningarmál samtakanna.
 

Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands. Lestu tímaritið hér. 

 

Skólavarðan í Apple-Store

Skólavarðan í Google Play

Skólavarðan á netinu