Nýtt skipulag breytti menningu skólasamfélagsins

Niðurstöður rannsóknar Emilíu Gilbertsdóttur og Sigríðar Þorbjörnsdóttur sýna að innleiðing flæðisskipulags í leikskóladeild Kerhólsskóla hafði djúpstæð áhrif á líðan, samskipti og þroska barna og menningu skólans. Rannsóknasjóður KÍ styrkti verkefnið.
Emilía Lilja Rakelar og Gilbertsdóttir og Sigríður Þorbjörnsdóttir hlutu styrk að upphæð 800.000 krónur fyrir verkefni sitt Þróun flæðis í leikskóladeild Kerhólsskóla. Hér rita þær um niðurstöðurnar og rannsóknarferlið.
„Í litla samfélaginu í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur Kerhólsskóli - samrekinn leik- og grunnskóli gengið í gegnum róttæka umbreytingu síðastliðin ár. Þar var tekin upp ný hugmyndafræði í leikskólastarfinu sem kallast flæði, og hefur sú breyting ekki einungis haft áhrif á börnin, heldur á allt skólasamfélagið.
Frá hausti 2019 til loka árs 2024 var unnið markvisst að því að innleiða flæðisskipulag í leikskóladeild Kerhólsskóla. Flæði felur í sér sveigjanlegt skipulag þar sem börn fá að velja viðfangsefni og leikfélaga eftir eigin áhuga og getu. Dagskipulag er brotið upp og leikurinn fær meira vægi með það að markmiði að efla sjálfstæði, vellíðan og dýpri námstengingu barna.
Beitt var fjölbreyttum aðferðum starfendarannsókna við framkvæmd rannsóknarinnar svo sem vettvangsathugunum, rannsóknardagbókum og rýnihópaviðtölum. Aðferðirnar voru nýttar til að greina áhrif breytinganna og móta stefnu. Mikil áhersla var lögð á sveigjanleika og aðlögun að aðstæðum. Meðal annars voru leikskólabörn og grunnskólabörn farin að mætast reglulega, stjórnun skólans endurskipulögð og kennarar hvattir til að vera virkir þátttakendur í leik barna fremur en aðeins stjórnendur.
Leikurinn lærdómurinn
Rannsóknir sýna að börn læra best í gegnum leik þar sem þau eru í flæði, þegar þau gleyma sér í verkefni og ná að einbeita sér í lengri tíma. Í fyrri rannsókn höfðu höfundar komist að því að með því að styðja við frelsi og sjálfstæði barna dróg úr árekstrum og líðan batnaði. Þær ákváðu því að kanna hver áhrifin yrðu ef flæði yrði gert að meginstefnu í daglegu starfi leikskólans og hvort það hefði áhrif út fyrir veggi leikskólans sjálfs.
Ferlið hófst árið 2021 og lauk með lokaskýrslu veturinn 2024–2025. Á þeim tíma þróaðist skólastarfið úr hefðbundnu stífu kerfi í sveigjanlegt námsumhverfi leik- og grunnskóla. Leiðin lá ekki alltaf bein: Upphaflega var tregða meðal sveitarstjórnar og sumir starfsmenn voru efins. En með eldmóði og fagmennsku tókst teyminu að snúa við blaðinu.

Fagmennska, skýr stefna og þor til að breyta geta haft djúp áhrif á allt skólasamfélagið
Áhrifin umfangsmikil
Áhrifin á börnin voru skýr: færri árekstrar, meiri ró, dýpri leikur og betri félagsfærni. Börn fengu aukna stjórn á eigin verkefnum og sýndu meira sjálfstæði og forvitni í námi. Einnig voru tengsl þeirra við önnur börn fjölbreyttari þau léku sér meira þvert á aldur og lærðu hvert af öðru. Foreldrar lýstu ánægju og sögðu börnin sína sýna meiri samkennd og aukinn áhuga á skólanum.
Áhrifin á kennarana voru einnig umtalsverð. Þeir sögðust finna fyrir aukinni starfsánægju, meiri þátttöku og dýpri tengingu við börnin. Verkaskipting varð skýrari, en jafnframt meiri samvinna á milli deilda, sem styrkti faglegt starf og dró úr einangrun leikskólans frá grunnskólanum.
Grunnskóladeildin fór einnig að innleiða flæði í sinni kennslu, sérstaklega á yngsta stigi. Notaðar voru svokallaðar „rúllur“ – stöðvar sem börnin gátu valið á milli, þar sem jafnvægi var á milli krefjandi verkefna og slökunar. Þetta var beint svar við því sem börnin, sem áður voru í leikskóladeild, kölluðu eftir: meira frelsi, sveigjanleika og leik í námi sínu.
Áhrifin á börnin voru skýr: færri árekstrar, meiri ró, dýpri leikur og betri félagsfærni
Vellíðan, valfrelsi og virðing
Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að hlusta á börnin og virða þarfir þeirra. Hún sýnir líka að fagmennska, skýr stefna og þor til að breyta geta haft djúp áhrif, ekki aðeins á einstaka deild heldur á allt skólasamfélagið.
Skólanefnd sveitarfélagsins hefur lýst yfir ánægju og tilnefndi verkefnið til menntaverðlauna. Foreldrar, margir hverjir sjálfir kennarar, hafa upplifað breytinguna beint í gegnum börnin sín og ýtt undir áframhaldandi þróun. Í dag er Kerhólsskóli í fremstu röð hvað varðar samfellu í skólastarfi, allt frá fyrstu leikskólastundum til loka grunnskóla.
Kerhólsskóli er dæmi um hvernig hugmyndafræði, ef hún er framkvæmd af festu og samstöðu getur umbreytt heilli stofnun. Með flæðisskipulagi í forgrunni hefur skólastarfið þróast í átt að menntun sem byggir á vellíðan, valfrelsi og virðingu fyrir þroskaferli hvers barns. Og ef börnunum líður vel – þá gerast kraftaverkin.“
