Nýtt samskiptakerfi tekið upp á Mínum síðum

Fréttir|22. janúar 2025

Markmið með nýju kerfi er að auka skilvirkni og öryggi í samskiptum við skrifstofu KÍ. Samskiptakerfið er þægilegt í notkun og mun draga úr vægi tölvupósta.

Kennarasambandið tekur í dag upp nýtt samskiptakerfi við félagsfólk. Kerfið er á Mínum síðum á vef sambandsins.

Félagar geta sent inn fyrirspurnir um kjaramál, styrki, afslætti, orlofssjóð, leigu orlofseigna og þar fram eftir götunum, eða almennar fyrirspurnir um málefni sambandsins. 

Með nýja kerfinu er einkum horft til öruggra samskipta við félagsfólk, því það þarf að auðkenna sig, og rekjanleika, því öll samskipti, umsóknir og fylgiskjöl vistast í skjalakerfi sambandsins. Ef Kennarasambandið rekur mál fyrir hönd félagsmanna, verða skjöl málsins og samskipti varðveitt í kerfinu.

Samskipti vegna umsókna í sjóði sambandsins fara einnig fram í kerfinu. Vanti til dæmis fylgiskjöl með umsóknum, eða starfsfólk sjóðasviðs þarf að hafa samband við umsækjanda, eru samskiptin skráð á síðunum.

Sjóðfélagi fær tölvupóst um að skilaboð bíði á Mínum síðum, hann skráir sig inn, les skilaboð og bregst við.

Með þessari breytingu er gert ráð fyrir að vægi tölvupósts minnki verulega enda mun þægilegra að reka mál á persónulegu svæði félagsmanns.

Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að nýta sér þessa nýju tækni.