Nýtt lífeyriskerfi og jöfnun launa
Í dag var undirritað samkomulag milli KÍ, BSRB og BHM annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar um nýtt lífeyriskerfi. Í því felst að núverandi lífeyrisréttindi félagsmanna eru tryggð. Lífeyriskerfi opinberra starfsmanna hefur verið fullfjármagnað og verður hér eftir sjálfbært. Í þeim tilgangi leggja ríki og sveitarfélög samtals um 120 milljarða króna í sérstaka lífeyrisaukasjóði auk fjármuna í svonefndan varúðarsjóð. Ennfremur hafa ríki og sveitarfélög skuldbundið sig til að leiðrétta launamun á milli opinbera markaðarins og hins almenna.
Með samkomulaginu er stigið stórt skref í þá átt að allt launafólk í landinu mun í framtíðinni njóta sambærilegra lífeyrisréttinda hvort sem það starfar á opinberum eða almennum vinnumarkaði. Verði nauðsynlegar lagabreytingar samþykktar á Alþingi í haust gengur nýtt lífeyriskerfi í gildi 1. janúar 2017.
Engin breyting fyrir sjóðfélaga
Það hefur verið markmið KÍ og annarra bandalaga opinberra starfsmanna í viðræðum um málið síðustu ár að tryggja réttindi núverandi sjóðfélaga sem og að gæta hagsmuna þeirra félagsmanna sem nýtt kerfi mun ná til. Samkomulagið nær til þeirra sem greitt hafa í A-deild LSR (Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins) og Brúar (Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga). Með því er tryggt að opinberir starfsmenn halda óbreyttri ávinnslu og engin breyting verður á lífeyrisréttindum sem þeir hafa þegar áunnið sér. Er niðurstaðan í samræmi við samþykkt síðasta þings KÍ um lífeyrismál, en þar segir meðal annars:
„Sjötta þing Kennarasambands Íslands haldið í Reykjavík dagana 1. - 4. apríl 2014 leggur áherslu á að skilyrði KÍ fyrir þátttöku í þessari vinnu sé að réttindi núverandi sjóðsfélaga í A- og B-deild LSR og sjóðsfélaga í sambærilegum deildum sjóða sveitarfélaganna verði ekki skert. Ennfremur áréttar þingið að komi til þess að sátt náist um nýtt kerfi sem byggir á framangreindum forsendum sé nauðsynlegt að mat verði lagt á launakjör starfsmanna milli markaða og þau jöfnuð samtímis breytingunni.“
Drög að samkomulaginu voru kynnt stjórn KÍ sem og stjórnum og samninganefndum aðildarfélaga Kennarasambandsins föstudaginn 9. september síðastliðinn. Þessir aðilar samþykktu í framhaldi samhljóða fyrirliggjandi tillögu. Hún felur meðal annars í sér að í nýju lífeyriskerfi verði aldurstenging réttinda grundvallarreglan, en hún hefur verið við lýði á almennum markaði síðastliðinn áratug. Þá verður lífeyrisaldur opinberra starfsmanna hækkaður úr 65 árum í 67. Tryggt er að núverandi sjóðfélagar haldi áunnum réttindum sínum sem og óbreyttri réttindaávinnslu til starfsloka og geti eftir sem áður farið á eftirlaun 65 ára, kjósi þeir að gera það.
Launakjör verða jöfnuð
Kennarasamband Íslands, eins og önnur bandalög opinberra starfsmanna, lagði þunga áherslu á að samhliða breytingum á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna verði launakjör þeirra jöfnuð við það sem þekkist á almenna markaðinum. Í því samkomulagi sem nú hefur verið undirritað hafa ríki og sveitarfélög skuldbundið sig til að leiðrétta launamun á milli opinbera markaðarins og hins almenna. Gert er ráð fyrir að sú vinna taki að hámarki 10 ár. Í samræmi við áðurnefnda samþykkt sjötta þings KÍ er ákvæði um jöfnun launa eitt meginskilyrði fyrir því að Kennarasambandið samþykkti breytingar á lífeyriskerfinu.
Sátt á vinnumarkaði
Eitt af meginmarkmiðum með samkomulagi um framtíðarskipan lífeyrismála er að ná sátt á vinnumarkaði. Breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna eru flókið og umfangsmikið viðfangsefni. Þar hafa bandalög opinberra starfsmanna staðið vörð um þau mikilvægu réttindi sem félagar í lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna hafa áunnið sér.
Unnið hefur verið að því að ná samkomulagi um nýtt lífeyriskerfi frá því stöðugleikasáttmáli aðila á vinnumarkaði var undirritaður árið 2009. Fjallað hefur verið um stöðuna í viðræðum á fundum og þingum Kennarasambandsins frá þeim tíma þar sem að grunnurinn að áherslum KÍ í málinu hefur verið útfærður. Síðustu ár hefur verið unnið eftir samþykkt sjötta þings KÍ sem minnst var á hér að ofan.
Frekari upplýsingar um samkomulagið:
Sameiginleg yfirlýsing bandalaga opinberra starfsmanna, ríkis og sveitarfélaga
Glærukynning fjármálaráðuneytisins.