Nýtt kynningarmyndband um starfsemi KÍ

Fréttir|17. janúar 2017

Hvað er Kennarasamband Íslands

Hvað er Kennarasamband Íslands? Hver er uppbygging þess og hvaða þjónustu veitir starfsfólk? Þessum spurningum og mörgum fleiri er svarað í nýju kynningarmynbandi sem KÍ hefur látið gera.

Markmiðið með myndbandinu er að setja lykilspurningar um starf KÍ fram á skýran og aðgengilegan hátt. Fjallað er um fjölmarga þætti í starfseminni, sérstaklega um þjónustu sjóða KÍ og sérfræðinga sem starfa fyrir kennarasamtökin.

Kennarastarfið er í forgrunni og voru skólar á öllum skólastigum heimsóttir við gerð myndbandsins. Dúi J. Landmark kvikmyndagerðarmaður annaðist framleiðslu myndbandsins í samvinnu við starfsfólk útgáfusviðs KÍ.

Myndbandið, sem er fimm mínútur að lengd, er aðgengilegt á vefnum.