Nýr þjónustufulltrúi tekur til starfa hjá FF

Þorbjörn er jarðfræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu af störfum við framhaldsskóla. Hann kenndi í átta ár við Menntaskólann á Egilsstöðum auk þess að gegna stöðu áfangastjóra, var í eitt ár skólameistari þar í afleysingum og hefur síðan 2013 verið áfangastjóri í Flensborg.
Þorbjörn Rúnarsson, áður áfangastjóri við Flensborgarskólann í Hafnarfirði, tekur til starfa hjá Félagi framhaldsskólakennara og Vísindasjóði FF og FS í byrjun febrúar. Hann var einn 12 umsækjenda um stöðuna.
Þorbjörn er jarðfræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu af störfum við framhaldsskóla. Hann kenndi í átta ár við Menntaskólann á Egilsstöðum auk þess að gegna stöðu áfangastjóra, var í eitt ár skólameistari þar í afleysingum og hefur síðan 2013 verið áfangastjóri í Flensborg. Þorbjörn hefur verið virkur í félagsstörfum og þá mest fyrir Félag stjórnenda í framhaldsskólum þar sem hann hefur verið varaformaður síðustu ár.
Þorbjörn er boðinn velkominn í hópinn í KÍ.
