Nýr þjónustufulltrúi í kjara- og réttindamálum

Fréttir|9. janúar 2017

Kennarasambandið hefur ráðið Guðjón Ágúst Gústafsson í starf þjónustufulltrúa á kjara- og réttindasviði.

Kennarasambandið hefur ráðið Guðjón Ágúst Gústafsson í starf þjónustufulltrúa á kjara- og réttindasviði. Ingibjörg Úlfarsdóttir, sem sinnt hefur þessum málaflokki síðust ár, hætti störfum í lok síðasta árs. Guðjón var valinn úr hópi ríflega 70 umsækjenda en menntun hans og starfsreynsla féllu best að auglýstum hæfniskröfum.

Guðjón Ágúst er með B.Ed. í kennslufræðum og er grunnskólakennari. Þá hefur hann einnig lokið meistaraprófi í mannauðsstjórnun og fjölmörgum námskeiðum m.a. tengdum launaútreikningum. Á árunum 2007 – 2010 starfaði hann sem fræðslustjóri hjá Vodafone og árin 2010 – 2016 starfaði hann m.a. sem verkefnastjóri þjálfunar hjá Actavis.

Guðjón Ágúst hefur þegar hafið störf en hann mun aðallega sinna þeim réttindamálum félagsmanna KÍ sem snúa að veikindarétti, lífeyri og fæðingarorlofi.