Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn

Fréttir|27. júní 2024

Stjórnvöld, bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Tækniskólinn undirrituðu samkomulag um nýjan tækniskóla í dag. Áætlað er að skólinn rísi við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði haustið 2029.

Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Greint er frá undirrituninni á vef Stjórnarráðsins.

„Þessi undirskrift hér í dag er risavaxið skref í eflingu verk- og starfsnáms, núna er loksins hægt að koma framkvæmdum af stað. Þetta hefur verið forgangsmál mitt sem menntamálaráðherra og ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili og er mikið gleðiefni að sjá enn einn áfangann á þeirri vegferð verða að veruleika. Eftirspurnin er til staðar, bæði meðal nemenda og atvinnulífsins og því ánægjulegt að við stígum þetta mikilvæga skref nú saman til að mæta þessari þörf,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, af tilefninu.

Í dag fer starfsemi Tækniskólans fram í átta byggingum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Bygging nýs Tækniskóla er liður í aðgerðum stjórnvalda til að auka veg iðn-, starfs- og tæknináms á Íslandi. Á vef Stjórnarráðsins segir að markmiðið sé að efla námið og aðstöðu, koma allri starfseminni fyrir á einum stað, bregðast við aukinni eftirspurn eftir náminu og mæta þörfum atvinnulífsins.

  • Lesa meira um málið á vef Stjórnarráðsins.

Fyrirhugað er að byggja 30.000 fermetra byggingu sem rúmar um 3.000 nemendur á hafnarsvæðinu. Framkvæmdin verður í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga er byggð um 24.000 m2 bygging og í seinni áfanga um 6.000 m2 viðbót. Þá er gert ráð fyrir frekari stækkunarmöguleikum á lóðinni í framtíðinni. Áætlaður heildarkostnaður er 27 ma.kr.

 

Mynd: Stjórnarráð Íslands