Nýr samningur kynntur
Fréttir|6. apríl 2021

Kynningarfundir fyrir félagsfólk FF verða í vikunni.
Skrifað var undir framlengingu kjarasamnings FF og FS við ríkið síðasta miðvikudag. Nú liggja fyrir tímasetningar kynningarfunda með félagsfólki og eru þeir sem hér segir:
- Miðvikudaginn 7. apríl kl. 8:30-10:00
- Miðvikudaginn 7. apríl kl. 10:30-12:00
- Miðvikudaginn 7. apríl kl. 15:30-17:00
- Fimmutdaginn 8. apríl kl. 8:30-10:00
- Föstudaginn 9. apríl kl. 13:00-14:30
Hver tímasetning er tengill á hvern teams-kynningarfund og velur félagsfólk sér tímasetningu sem hentar. Einnig verður einn fundanna tekinn upp og upptaka gerð aðgengileg og auglýst í lok vikunnar.
Upplýsingar um atkvæðagreiðslu verða birtar um leið og þær liggja fyrir en kjörstjórn Kennarasambands Íslands skipuleggur atkvæðagreiðsluna. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar þarf að liggja fyrir í lok næstu viku.
Frétt um undirritun samnings þann 31. mars 2021.