Nýr lögmaður

Fréttir|13. janúar 2015

Anna Rós Sigmundsdóttir héraðsdómslögmaður hefur verið ráðin til starfa hjá Kennarasambandi Íslands. Hún útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005, kláraði ML gráðu frá sama skóla árið 2007 og tók héraðsdómslögmannsréttindi árið 2008. Anna Rós starfaði sem innanhúslögmaður hjá Actavis frá árinu 2010 en áður hafðu hún meðal annars unnið hjá KPMG og Umboðsmanni barna. Anna Rós hefur þegar hafið störf.