Nýr kjarasamningur Skólastjórafélagsins

Fréttir|26. ágúst 2022

Kjarasamningurinn verður kynntur félagsmönnum SÍ eftir helgi og í framhaldinu verður gengið til atkvæða um samninginn.

Skólastjórafélag Íslands og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu fyrr í dag undir nýjan kjarasamning. Gildistími samningsins er 1. janúar 2022 til 30. september 2023.

Kjarasamningurinn verður kynntur félagsmönnum SÍ eftir helgi og í framhaldinu verður gengið til atkvæða um samninginn. 

Atkvæðagreiðsla hefst miðvikudaginn 31. ágúst 2022 kl. 09.00 og lýkur mánudaginn 5. september 2022 kl. 12.00.

Nýi samningurinn verður kynntur félagsmönnum á eftirfarandi hátt

  • Mánudagur 29. ágúst 2022
    Víðistaðaskóli í Hafnarfirði kl. 11.00
    Hótel Selfossi kl. 14.15
  • Þriðjudagur 30. ágúst 2022
    Egilsstaðaskóli kl. 10.30
    Naustaskóli á Akureyri kl. 16.30
  • Miðvikudagur 31. ágúst
    Austurbæjarskóli í Reykjavík kl. 10.30
    Grunnskólinn í Borgarnesi kl. 16.15
    Teams kynning kl. 19.30. Slóð á kynningu send út síðar.