Nýr kjarasamningur samþykktur
Fréttir|22. apríl 2014
Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga við ríkið, Tækniskólann og Menntaskóla Borgarfjarðar. Atkvæðagreiðsla um samningana lauk á hádegi í dag. Úrslit voru sem hér segir:
Samningur við ríkið:
Á kjörskrá: 1.558
Atkvæði greiddu: 1.010 (64,8%)
Já: 898 (88,9%)
Nei: 81 (8,0%)
Auðir: 31 (3,1%)
Samningur við Tækniskólann:
Á kjörskrá: 165
Atkvæði greiddu: 80 (48,5%)
Já: 70 (87,5%)
Nei: 9 (11,3%)
Auðir: 1 (1,2%)
Samningur við Menntaskóla Borgarfjarðar:
Á kjörskrá: 14
Atkvæði greiddu: 8 (57,1%)
Já: 8 (100%)
Nei: 0 (0%)
Auðir: 0 (0%)