Nýr fulltrúi FS í stjórn Vísindasjóðs

Kolbrún Kolbeinsdóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans, hefur tekið sæti í stjórn Vísindasjóðs FF og FS.
Kolbrún Kolbeinsdóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans, hefur tekið sæti í stjórn Vísindasjóðs FF og FS.
Kolbrún var kjörin í embættið á aðalfundi Félags stjórnenda í framhaldsskólum sem fram fór á Akureyri 8. júní síðastliðinn. Lilja S. Ólafsdóttir, aðstoðarskólameistari Menntaskólans í Borgarfirði, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Stjórn Vísindasjóðsins þakkar Lilju vel unnin störf á umbrotatímum í sögu sjóðsins.
Stjórn Vísindasjóðs FF og FS skipa auk Kolbrúnar tveir fulltrúar frá Félagi framhaldsskólakennara; þeir Jón Ragnar Ragnarsson og Ólafur Þórisson. Til vara eru Gísli Þór Sigurþórsson, FF, og Dröfn Viðarsdóttir, FS.
Stjórn Vísindasjóðs FF og FS fundar næst miðvikudaginn 21. júní nk.