Nýr bókunarvefur Orlofssjóðs KÍ

Ný útgáfa af Frímanni, orlofsvef Orlofssjóðs KÍ, verður tekin í notkun í næstu viku. Vegna þessa mun orlofsvefurinn liggja niðri mánudaginn 30. nóvember og þriðjudaginn 1. desember meðan á prófunum og yfirfærslu stendur.
Orlofssjóður KÍ tekur í notkun nýja útgáfu af orlofsvefnum Frímanni eftir helgina. Við uppfærsluna verður viðmót vefsins nútímalegra og notendavænna. Útlit vefsins breytist töluvert og gæti tekið einhverja stund að venjast nýju viðmóti. Með breytingunni teljum við að auðveldara verði að fá yfirsýn yfir orlofseignir sjóðsins, skoða laus tímabil og ganga frá bókunum. Þá verður vefumhverfið mun öruggara, sem ekki síður skiptir máli á tímum sem þessum.
Tímabundin lokun bókunarvefs 30. nóvember og 1. desember
Vegna uppfærslunnar verður orlofsvefurinn lokaður dagana 30. nóvember og 1. desember á meðan unnið er að yfirfærslu og prófunum. Ekki verður hægt að bóka þjónustu hjá Orlofssjóði þessa tvo daga. Við biðjumst velvirðingar á þjónusturofinu og vonum að félagsfólk sýni því skilning.
Leiðbeiningar um nýja bókunarvefinn
Til að auðvelda félagsfólki að læra á nýja kerfið og átta sig á breytingunum fylgja hér með leiðbeiningar sem við skiptum í tvennt. Fyrri hlutinn skýrir skrefin sem taka þarf til að bóka orlofseignir á vefnum. Sá seinni útskýrir hvernig nálgast má aðra þjónustu sjóðsins.
Við vonum að félagsfólk taki nýja kerfinu vel. Eins og gjarnan vill verða þegar nýjar lausnir eru teknar í notkun geta komið upp byrjunarörðugleikar og biðjumst við fyrir fram velvirðingar á þeim óþægindum sem af þeim kunna að hljótast.
Þjónusta
Starfsfólk Orlofssjóðs verður við símann um leið og vefurinn er kominn í loftið og mun vera félagsfólki innan handar við að taka fyrstu skrefin í nýju vefumhverfi. Við getum því miður ekki, frekar en félagar, bókað á meðan vefurinn er niðri.
Hægt er að hafa samband við sjóðinn á orlof@ki.is , í gegnum fyrirspurnarkerfi KÍ og í síma Orlofssjóðs 595-1195, sem er opinn 10:00-15:00 alla virka daga.

Tungubraut 2, Ísafirði
Ný orlofseign á Ísafirði
Samhliða uppfærslu á orlofsvefnum verður opnað fyrir bókanir á nýrri íbúð Orlofssjóðs á Ísafirði.
Um er að ræða 76 fermetra íbúð við Tungubraut 2 og hefur haustið verið nýtt til þess að standsetja hana. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og svefnpláss fyrir fimm. Eldhús, borðstofa og stofa liggja saman í opnu rými eins og almennt er í orlofseignum sjóðsins. Útisvæðið er gott, stór sólpallur með útihúsgögnum og gasgrilli. Ekki er heitur pottur frekar en í öðrum eignum sjóðsins í þéttbýli. Eigninni fylgir lítið viðbótarhús sem verið er að breyta í gestahús þar sem tveir til viðbótar geta sofið.
Fyrir á sjóðurinn tveggja herbergja íbúð í sömu raðhúsalengju og því gleðilegt að geta nú boðið upp á stærri eign fyrir vestan.
Staðsetning íbúðarinnar er einstaklega góð þar sem kvöldsólin vermir vanga gesta á sumrin. Stutt er stutt í góða göngustíga sem þræða sig um Tungudal, Seljalandsdal og ofan varnargarðana. Þá eru bæði golfvöllurinn og skíðasvæðið innan seilingar og vonum við að þessi viðbót í eignasafnið muni gleðja félagsfólk okkar og nýtast vel.