Nýliðunarþörfin knýjandi og aðkallandi í tónlistarskólanum

Fréttir|13. september 2024

Fulltrúar tónlistarskólans ræddu helstu málefni hans við Rauða borðið í gær. Sigrún Grendal, formaður FT, Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri og Jóhann Ingi Benediktsson kennari, fulltrúar í Fagráði FT og Júlíana Rún Indriðadóttir skólastjóri voru gestir Gunnars Smára Egilssonar.

Í tilefni af herferð Kennarasambandsins - Fjárfestum í kennurum - voru skólamálin rædd við Rauða borðið þessa vikuna. Leikskólinn hóf leika á mánudaginn, framhaldsskólinn fylgdi á þriðjudaginn, grunnskólinn á miðvikudaginn og tónlistarskólinn svo á fimmtudaginn.

Í þætti gærdagsins voru helstu málefni tónlistarskólans rædd, svo sem fækkun nemenda í tónlistarskólum á undanförnum árum, aðgengi að tónlistarmenntun og kennaraskorturinn. Viðmælendur voru Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT), Hjörleifur Örn Jónsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri og fulltrúi í Fagráði FT, Jóhann Ingi Benediktsson, kennari í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og fulltrúi í Fagráði FT og Júlíana Rún Indriðadóttir, skólastjóri Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

Fækkun nemenda misvísandi

Eftir að hafa rætt það jákvæða og góða við tónlistarskólann barst talið að þeirri staðreynd að nemendum tónlistarskóla hefur fækkað um 13% frá 2009-2024, á meðan landsmönnum fjölgaði um 20%. Hlutfallsleg fækkun nemenda í tónlistarskólum á þessu tímabili er því 28% þegar horft er til mannfjöldaþróunar.

„Þó ég tali hérna um að við séum með fallega stefnu og að stjórnvöld eigi að tryggja aðgengi almennings að tónlistarmenntun og tónlist að þá er náttúrulega bara hálf sagan sögð ef að fjármagn fylgir ekki,“ segir Sigrún. Þegar kerfið var byggt upp þá voru menn samhentir, þar sinntu allir sínu hlutverki, tryggðu fjármögnun með lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, en reyndin er sú að við erum enn með sömu löggjöf að stofninum til frá 1963, segir hún. Nú fari ekki saman hljóð og mynd. „Þannig að þetta hefur setið eftir, umgjörðin sem þarf að vera til þess að við getum framkvæmt stefnuna.“

Júlíana tekur undir. „Þessi fækkun hún hefur ekki með það að gera held ég, að það sé minni aðsókn. Hún hefur með það að gera að sveitarfélögin hafa ýmist dregið úr framlögum eða ekki bætt í eins og þyrfti að gera í sveitarfélögum sem hafa vaxið mjög mikið eins og Reykjavík og Kópavogur.“ Á meðan að nemendum hefur fækkað í tónlistarskólum, þá verður ekki vart við þá fækkun á biðlistum í tónlistarnám, bendir Hjörleifur þá á. Það gefi til kynna að tónlistarnemum hafi ekki fækkað vegna minni eftirspurnar. 


Nauðsynlegt að bæta aðgengi að tónlistarnámi

Ójafnt aðgengi að tónlistarnámi bæti þá gráu á svart. „Veruleikinn er þannig að tónlistarnám er ekki aðgengilegt öllum óháð efnahag. Við getum fagnað því að nú nýverið var brugðist við því sem við höfum reynt að hamra á mjög lengi – því ójafnrétti að nemendur sem ætla að leggja fyrir sig tónlist þurfi að greiða gríðarlega há skólagjöld í Listaháskólanum. Nú voru þau lögð niður og það hjálpar okkur við stóra vandann sem er knýjandi og aðkallandi nýliðunarþörf í stétt tónlistarskólakennara ef við ætlum að viðhalda þessu kerfi,“ segir Sigrún.

Ef að menn ætla að tryggja aðgengið og jafnréttið þá þurfa þeir núna að taka neðri stig og gera eins og Listaháskólinn varðandi aðgengi að tónlistarmenntun og að það sé jafnrétti gagnvart öðru námi, eins og í framhaldsskólum, að þar sé tónlistarnám ekki háð skólagjöldum, bætir Sigrún við. 

Til dæmis setji nýjar reglur hjá borginni enn eitt strikið í reikninginn. „Því miður hafa sveitarfélög og ríki verið að kasta boltanum mikið á milli sín og núna er því miður komin sú staða að það hefur ákveðin áhrif [á jafnt aðgengi að tónlistarnámi] sums staðar,“ segir Jóhann. Þegar nemendur ná 18 ára aldri í borginni, eiga þeir ekki lengur rétt á niðurgreiðslu í tónlistarnámi á neðri stigum, samkvæmt Reglum um þjónustusamninga Reykjavíkur-borgar við tónlistarskóla, en þar segir m.a.: 

Fjárframlag vegna nemenda á neðri stigum tónlistarnáms: Reykjavíkurborg tekur ákvörðun um árlegt heildarfjármagn og kennslumagn til tónlistarskóla vegna náms á neðri stigum tónlistarnáms. Ekki er greitt fjárframlag í þágu kennslu nemenda eldri en 18 ára vegna fornáms, grunnnáms og miðnáms í hljóðfæraleik.

„Þetta finnst mér alls ekki vera í takt við það faglega starf sem við höfum verið að reyna að vinna,“ segir Jóhann. „Við höfum verið að reyna að átta okkur á því hvernig við getum útvíkkað okkar vinnu út frá því sem var – við erum ekki lengur bara að skapa sinfóníufólk, þó við séum vissulega að því líka – við erum að gera þetta útaf svo mörgum ástæðum og fólk á öllum aldri ætti í raun að eiga rétt á að finna sína leið í gegnum það [tónlistarnám] finnst mér.“

„Allar rannsóknir sýna að tónlistarvinna með fólki getur skipt miklu máli á öllum aldri og tónlist getur þýtt ýmislegt fyrir einstaklinginn, getur verið mjög persónuleg, getur verið atvinnuskapandi, getur verið hvað sem er,“ segir Jóhann.

Vandinn vex og vex

Hjörleifur tók undir með áhyggjur formanns FT af aðkallandi nýliðunarþörf í stétt tónlistarskólakennara. „Okkur vantar kennara og ég held að það sé þannig á öllum skólastigum og í öllum skólum að það vantar hæft fólk til þess að kenna. Vandinn vex og vex.“

Það hafi mikið að gera með gildismat samfélagsins. „Er það ekki eftirsóknarvert að vera kennari? Er ekki eftirsóknarvert að vinna með því sem er mikilvægast fyrir hverri einustu manneskju í þessu landi sem á fjölskyldu, sem eru börnin þeirra? Erum við virkilega að setja það svona neðarlega í forgangsröðunina sem þjóð?“

Við erum að forgangsraða vitlaust í þessu samfélagi og það er það sem er að valda þessu vandamáli, segir Hjörleifur. Það að það sé ekki eftirsóknarvert að vera kennari endurspegli ekki grunngildi þjóðarinnar.