Nýliðar í kennslu og kynjasjónarhorn

Hvernig gengur nýjum kennurum að fóta sig í grunnskólum? Þetta var efniviður málþings sem fram fór í liðinni viku. Fjallað var um niðurstöður nýrrar rannsóknar um nýliða í kennslu.
Tæplega hundrað manns sátu velheppnað málþing um nýliða í kennslu í síðustu viku. Málþingið bar yfirskriftina: Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? og fór fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Hér er hægt að horfa á upptöku af þinginu.
Á málþinginu var fjallað um niðurstöður viðtalsrannsókna um nýliða í kennslu þar sem kynjasjónarhorni var meðal annars beitt til að greina viðtölin. Sagt var frá tveimur rannsóknum, annarri þar sem rætt var fimm sinnum við sjö karla og hins vegar tvisvar til fjórum sinnum við ellefu konur. Viðtölin fóru fram á tveggja ára tímabili.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emeritus, og Valgerður S. Bjarnadóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, leiddu rannsóknina. Auk þeirra voru Aðalheiður Anna Erlingsdóttir, Andri Rafn Ottesen og Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir í rannsóknarhópnum.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, setti þingið en síðan voru flutt erindin Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu: Nýliðar og kynjasjónarhorn (Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Valgerður S. Bjarnadóttir) og Lærdómar af rannsókninni (Sigrún Gunnarsdóttir prófessor).
Hvað má læra af þessum rannsóknum fyrir starf nýliða og fyrir skólastarfið í grunnskólunum?
Svava Björg Mörk, lektor á Menntavísindasviði, stýrði pallborðsumræðum þar sem tóku þátt: Aðalheiður Anna Erlingsdóttir, kennari við Grunnskólann í Þorlákshöfn, Andri Rafn Ottesen, kennari við Garðaskóla, Álfheiður Einarsdóttir, skólastjóri Engjaskóla, Elísabet Soffía Bender, kennari við Hraunvallaskóla og formaður Rökvíss, félags nýliða í kennslu, og Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir, kennari við Urriðaholtsskóla.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sleit málþinginu. Málþingsstjóri var Karen Rut Gísladóttir, forseti Deildar kennslu- og menntunarfræði við Háskóla Íslands.
Kennarasamband Íslands og Rannsóknarstofa í þróun skólastarfs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóðu að málþinginu.
Þátttakendur á málþinginu
Álfheiður Einarsdóttir, skólastjóri Engjaskóla; Karen Rut Gísladóttir, forseti Deildar kennslu- og menntunarfræði við Háskóla Íslands; Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands; Svava Björg Mörk, lektor og umsjónarmaður námsins Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf á Menntavísindasviði Háskóla Íslands; Elísabet Soffía Bender, kennari við Hraunvallaskóla og formaður Rökvíss, félags nýliða í kennslu; Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands; Aðalheiður Anna Erlingsdóttir, kennari við Grunnskólann í Þorlákshöfn; Valgerður S. Bjarnadóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands; Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands; Andri Rafn Ottesen, kennari við Garðaskóla; Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir, kennari við Urriðaholtsskóla; Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara (sem hljóp í skarðið fyrir Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambands Íslands á myndinni en hann sleit málþinginu)
Myndirnar tók Kristinn Ingvarsson, Háskóla Íslands.