Nýliðafélagið heitir Rökvís

Starfsemi nýstofnaðs félags nýliða í kennslu er formlega hafin.
Stjórn félags nýliða í kennslu hefur skipt með sér verkum. Formaður er Elísabet Soffía Bender, ritari er Gunnar Ásgrímsson og gjaldkeri Júlíana Rose Júlíusdóttir. Meðstjórnendur eru Hrafnkell Hringur Helgason og Kristín Helga Magnúsdóttir.
Fyrsti stjórnarfundur félagsins er að baki og nú fer starfseminn að rúlla í gang. Búið er að velja félaginu nafn og kallað það Rökvís – félag nýliða í kennslu.
Stofnfundur félagsins fór fram í október á síðasta ári og þar voru lög félagsins samþykkt. Rétt til aðildar í Rökvís eiga félagsmenn KÍ fyrstu fimm árin í starfi, kennaranemar sem starfa við kennslu, kennaranemar á síðasta ári í námi og kennarar sem færa sig milli skólastiga.

Við hvetjum félagsfólk KÍ til að benda nýjum kennurum á félagið. Raddir ungra kennara eru mikilvægar.