Nýjustu orlofshúsin njóta vinsælda

Fréttir|27. september 2022
Íbúðin á Siglufirði.

Bifröst, Ísafjörður, Siglufjörður og Vestmannaeyjar eru staðir þar sem Orlofssjóður hefur á síðustu misserum fest kaup á nýjum orlofshúsum og íbúðum. Þessir staðir njóta vinsælda meðal félagsmanna.

Orlofssjóður KÍ hefur nýverið fest kaup á orlofsíbúðum á fjórum fallegum stöðum; á Bifröst, Ísafirði, Siglufirði og í Vestmannaeyjum. Allir þessir staðir hafa notið vinsælda en að sögn starfsfólks sjóðsins mun eitthvað þó enn laust af helgum á þessum nýju stöðum næstu mánuðina. 

Bifröst

Vorið 2021 keypti OKÍ raðhúsalengju með átta 43 fermetra íbúðum efst í byggðinni á Bifröst. Á verönd húsanna er heitur pottur, gasgrill og útihúsgögn. Fjölda veitingastaða má finna finna í nágrenninu en svæðið í kringum Bifröst er rómað fyrir náttúrufegurð auk þess að vera einstakt svæði til útiveru.

Félagsmenn KÍ fá því gott tækifæri til að dvelja við eða eiga gott afdrep í nálægð við fallega náttúru sem umlykur svæðið í kringum Bifröst. Með dvölinni fylgir frípassi fyrir tvo á golfvöllinn Glanna á meðan veður leyfir.

Vestmannaeyjar

Fyrir rúmu ári tók OKÍ í notkun tvær íbúðir í Vestmannaeyjum. Þær eru tveggja herbergja á jarðhæð að Strandvegi 26 og um 60 fermetrar. Húsið hýsti áður starfsemi Ísfélags Vestmannaeyja. Íbúðirnar eru við höfnina en fjölda veitingastaða má finna í nágrenninu.

Náttúran í Vestmannaeyjum spillir heldur ekki og helgarferð þangað er því spennandi valkostur.

Siglufjörður

Fyrir um tveimur árum tók OKÍ íbúð á Siglufirði í notkun. Íbúðin er að Hlíðarvegi 20, er 3ja herbergja og 97 fermetrar á jarðhæð í gamla gagnfræðaskólanum á Siglufirði. Úr íbúðinni er fallegt útsýni yfir bæinn en húsið var nýlega standsett og breytt í íbúðir. Gott skíðasvæði er á Siglufirði og hefur íbúðin notið mikilla vinsælda meðal skíðafólks. Margar góðar gönguleiðir má finna í nágrenninu sem og nokkra góða vetingastaði. Helgarferð á Sigló er því spennandi valkostur.

Ísafjörður

Fyrir rúmu ári tók OKÍ í notkun íbúð á Ísafirði. Íbúðin er um 50 fm, í litlu raðhúsi í nágrenni við skíðasvæðið og með svefnplássi fyrir allt að fjóra. Við húsið er lítil verönd með útihúsgögnum og grilli. Vestfirðirnir eru rómaðir fyrir náttúrufegurð og helgarferð vestur er því spennandi valkostur.