Nýjungar í jarðrækt og jarðvegstilraunum

Sumarnámskeið félagsins var vel sótt og gekk í alla staði vel. Tuttugu kennarar úr þrettán framhaldsskólum sóttu námskeiðið.
Félag raungreinakennara hélt sumarnámskeið um nýjungar í jarðrækt og jarðvegstilraunum ásamt efnafræði jarðvegs. Námskeiðið fór fram dagana 2. og 3. júní.
Á námskeiðinu var farið í grunn virkni íslensks jarðvegs og hvaða eiginleikar hans hafa áhrif á bindingu og losun kolefnis. Einnig var skoðað hlutverk jarðvegs og gróðurs í vatnsfræðilegum ferlum.
Þá var farið yfir aðra möguleika til kolefnisbindingar, s.s. endurheimt vistkerfa og skógrækt og jafnframt áhrif utanaðkomandi þátta á ferlin. Þá var skoðað hvernig jarðvegur er undirstaða undir matvælaframleiðslu, svo sem kornrækt og farið yfir það hvaða möguleikar eru til að auka þá ræktun hérlendis.
Jarðvegsstofa LbhÍ var heimsótt og farið í gegnum hvaða þætti verið er að rannsaka í íslenskum jarðvegi. Einnig voru jarðræktartilraunir á Hvanneyri heimsóttar.
Námskeiðið var annars vegar haldið í Keldnaholti í Reykjavík fyrri daginn en seinni daginn var farið með rútu upp á Hvanneyri.
Starfsfólk og kennarar Landbúnaðar háskólans á Hvanneyri eiga heiðurinn af því að hafa púslað saman metnaðarfullri dagskrá. Fagleg umsjón fyrir hönd félags raungreinakennara var í höndum Magnúsar Hlyns Haraldssonar.
Fyrirlesarar á námskeiðinu voru
- Ása Lovísa Aradóttir, prófessor hjá LbhÍ
- Berglind Orradóttir, lektor hjá LbhÍ og aðstoðarforstöðumaður Landgræðsluskóla GRÓ
- Jón Guðmundsson, lektor hjá LbhÍ
- Jón Hallsteinn Hallsson, prófessor hjá LbhÍ
- Hrannar Smári Hilmarsson, tilraunastjóri í jarðrækt
- Ólafur Gestur Arnalds, prófessor hjá LbhÍ
- Páll Sigurðsson, doktorsnemi hjá LbhÍ
Vettvangsferðir
- Rannsóknarsetur í jarðvegsrækt á Keldnaholti
- Jarðrækt og jarðvegstilraunir á Hvanneyri
Námskeiðið gekk mjög vel og var mætingin góð. Alls mættu 20 kennarar úr 13 framhaldsskólum á námskeiðið. Á námskeiðinu gafst einnig tími fyrir kennara úr mismunandi skólum að ræða ýmislegt tengt raungreinakennslu í framhaldsskólum og fyrir kennara að bera saman bækur sínar.