Nýjung hjá LSR: Tilgreind séreign

Fréttir|30. júní 2023

Frá 1. júlí geta sjóðfélagar í A-deild LSR valið að láta hluta af skyldubundnu lífeyrisiðgjaldi renna í tilgreinda séreign og lækka á móti greiðslur í samtryggingu.

Skyldubundið lífeyrisiðgjald er 15,5%, af launum en frá 1. júlí mun sjóðfélögum LSR bjóðast að láta 1,5%, 2,5% eða 3,5% af launum renna í tilgreinda séreign, og lækka þá iðgjald í samtryggingu á móti.

Með þessu nýja úrræði LSR fæst aukinn sveigjanleiki við skipulagningu starfsloka.

Helstu einkenni tilgreindrar séreignar

Mikilvægt að sjóðfélagar kynni sér vel heildaráhrif þess að greiða í tilgreinda séreign. Helstu einkenni tilgreindrar séreignar eru að:

  • Hún er einkaeign sjóðfélaga og verður því erfanleg
  • Hægt er að fá hana greidda út frá 62 ára aldri án þess að hefja töku eftirlauna
  • Hægt er að nýta hana til greiðslu inn á fasteignalán vegna fyrstu íbúðarkaupa

Hafa þarf í huga að með því að greiða í tilgreinda séreign lækkar iðgjald í samtryggingu. Það þýðir að:

  • Samtryggingarlífeyrir til æviloka lækkar
  • Réttindi til örorku- og makalífeyris lækka

Lesa meira um tilgreinda séreign hjá LSR
Nálgast umsóknareyðublað á Mínum síðum